(Skilgreining á hugtakinu "gagnabjörgun"; endurheimting rafrænna gagna af biluðum rafeindabúnaði eins og t.d. hörðum diskum, SSD diskum, NVMe diskum, USB minniskubbum, RAID stæðum, myndavélakortum, snjallsímum, fartölvum o.s.frv.) *Datatech ehf. kt. 420115-0240 Hér eftir "Datatech"
- Datatech tekur að sér bilanagreiningu á búnaði sem er í eigu þjónustukaupanda og innheimtir fyrir það tímagjald almennt eina klukkustund samkvæmt verðskrá en aðeins ef þjónustukaupandi samþykkir ekki tilboð í gagnabjörgun, hættir við eða svarar ekki tilboði sem hann hefur fengið sent með tölvupósti eftir bilanagreiningu á búnaði sem hann hefur komið með til Datatech og er þetta gjald undir öllum kringumstæðum óendurkræft og er til að standa undir kostnaði Datatech við bilanagreiningu. Tímagjald er einnig innheimt ef viðskiptavinur kemur með hlut í gagnabjörgun sem ekki er hægt að bjarga gögnum af með neinum hætti eða ef enginn gögn eru á búnaðinum til þess að bjarga, t.d. ef komið er með alveg tóman harðan disk eða myndavélakort.
- Þegar bilanagreining er framkvæmd þarf oft að brjóta upp hýsingar sem harðir diskar koma í frá framleiðanda og ekki er hægt að nota þær aftur og þeim því fargað. Þjónustukaupandi samþykkir það með því að samþykkja þessa skilmála þegar hann sendir inn þjónustubeiðni. Einnig er mögulegt að þessir diskar falli úr framleiðendaábyrgð við þessa aðgerð og viðskiptavinur gerir sér grein fyrir því og Datatech ber enga bótaábyrgð vegna þess.
- Datatech innheimtir aukalega tímagjald almennt 0,5 - 1 klst fyrir að fjarlægja harða diska eða aðrar gagnageymslur úr fartölvum eða borðtölvum, eða netþjónum. Ef þarf að fjarlægja disk úr Apple iMac tölvu sem er í framleiðendaábyrgð, þá þarf að gera það á viðurkenndu Apple verkstæði og koma bara með diskinn til okkar.
- Datatech býður upp á hraðþjónustu sem kostar aukalega 9.900 kr. með vsk. og einnig neyðarþjónustu sem kostar aukalega 19.900 kr. með vsk. Hraðþjónusta felur aðeins í sér að verkefnið er hafið næsta virka dag og neyðarþjónusta felur aðeins í sér að verkefnið er hafið samdægurs ef komið er með verkefnið fyrir hádegi. Hraðþjónusta og neyðarþjónusta fela ekki í sér neina gagnabjörgun eða loforð um að verkefnið verði tilbúið næsta virka dag eða strax heldur aðeins að það er byrjað á verkefninu fyrr. Ef valinn er hefðbundinn forgangur fer verkefnið í röð og er hafið almennt á næstu 5 virku dögum.
- Datatech tekur að sér "gagnabjörgun" eða (endurheimtingu rafrænna gagna af biluðum rafeindabúnaði) eftir að hafa framkvæmt "bilanagreiningu" búnaði þjónustukaupanda og eftir að þjónustukaupandi hefur samþykkt tilboð í "gagnabjörgun" skriflega eða með tölvupósti. Gagnabjörgun hefst aðeins eftir að þjónustukaupandi hefur samþykkt tilboð og eftir það er tilboðið að fullu bindandi fyrir þjónustukaupanda.
- Datatech getur ekki, lofar ekki og mun aldrei undir neinum kringumstæðum lofa sérstökum árangri. En við notumst hins vegar við viðurkenndar aðferðir við gagnabjörgun og þá tækni sem við búum yfir sem lofar sem bestum árangri í hverju verkefni fyrir sig við að bjarga rafrænum gögnum þjónustukaupanda af þeim búnaði eða hlut sem hann kemur með til þjónustu hjá fyrirtækinu hverju sinni.
- Datatech ábyrgist ekki að öll eða einhver gögn verði endurheimt af búnaði eða hlut þjónustukaupanda að nokkru leiti.
- Datatech ábyrgist ekki að búnaður eða hlutur í eigu þjónustukaupanda verði ekki skemmdur við tilraunir starfsmanna Datatech til að bjarga eða afrita rafræn gögn af honum og ber Datatech enga fjárhagslega ábyrgð eða annars konar ábyrgð vegna þess.
- Datatech ber enga ábyrgð eða fjárhagslega ábyrgð að nokkru leiti á gögnum, eða búnaði þjónustukaupanda þó hann sé í vörslu fyrirtækisins og starfsmanna þess.
- Datatech ber enga ábyrgð á gögnum þjónustukaupanda undir neinum kringumstæðum.
- Datatech ber enga ábyrgð á eðli þeirra gagna sem bjargað er, ástandi þeirra, lögmæti eða notagildi fyrir þjónustukaupanda svo lengi sem þau séu afrituð óbreytt af búnaði þjónustukaupanda.
- Dulkóðuð gögn: Datatech bjargar gögnum hvort sem þau eru dulkóðuð eða ekki. Það er á ábyrgð þjónustukaupanda að útvega rétt lykilorð. Ef þjónustukaupandi getur ekki útvegað lykilorð eða hefur gleymt því, breytir það engu um greiðsluskyldu hans samkvæmt tilboði. Verkefnið telst hafa heppnast þegar búið er að bjarga gögnunum skv. áætlun eða ná fullnægjandi speglunarafriti af disknum. Þegar gögn eru dulkóðuð kemur staðfesting á afritun eða fjölda geira (sectors) sem hafa verið afritaðir en ekki skráalisti.
- Datatech áskilur sér rétt til þess að afhenda ekki búnað eða hlut, sem þjónustukaupandi hefur komið með til þjónustu hjá fyrirtækinu nema búið sé að greiða reikning fyrir þjónustuna að fullu áður með sannanlegum hætti.
- Ef þjónustukaupandi kemur með búnað, tæki eða hlut til Datatech eða starfsmanna þess og samstarfsaðila í gagnabjörgun eða aðra þjónustu og sækir ekki búnað, tæki eða hlut innan 90 daga frá afhendingu verkefnis til Datatech eða samstarfsaðila Datatech. Þá hefur Datatech, starfsmenn og samstarfsaðilar rétt á að farga búnaðinum varanlega og þjónustukaupandi hefur enga kröfu á Datatech vegna þess síðar meir og Datatech ber enga fjárhagslega ábyrgð gagnvart þjónustukaupanda eða annars konar ábyrgð af nokkru tagi.
- Eftir að verkefni er tilbúið og viðskiptavinur hefur fengið sendan skráalista, eða staðfestingu á afritun dulkóðaðra gagna, og svo móttekið gögnin sín hefur hann aðeins 7 daga til að koma með athugasemd ef eitthvað vantar eða er ekki í lagi. Eftir þann tíma er verkefninu lokið og öllum gagnaafritum er eytt varanlega og ekki hægt taka málið upp aftur.
- Datatech fer fram á greiðslu heildareftirstöðva um leið og verkefnið er tilbúið til afhendingar og búið er að bjarga gögnum viðskiptavinar og sýna fram á það með því að senda skráalista til viðskiptavinar, eða staðfestingu á afritun ef gögnin eru dulkóðuð. Ef greiðsla er ekki innt af hendi innan eðlilegra tímamarka mun krafan verða áfram send til Inkasso.is í milliinnheimtu. Viðskiptavinur gefur upp netfang og símanúmer (samskiptaupplýsingar) í þágu viðskiptanna og samþykkir að samskiptaupplýsingunum verði miðlað til innheimtuaðila, komi til innheimtuaðgerða. Viðskiptavinur samþykkir auk þess að samskiptaupplýsingarnar verði hagnýttar almennt til samskipta við hann vegna innheimtu, þar á meðal með rafrænum innheimtuferlum.
- Athugasemdir vegna reikninga: Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu gerðar við útgefna reikninga án tafar og eigi síðar en á eindaga reiknings, ella telst reikningur samþykktur.
- Vegna mögulegra hagsmunaárekstra getur Datatech ekki tekið við verkefnum frá einstaklingum eða fyrirtækjum sem eru til rannsóknar hjá Lögreglunni.
- Eignarréttur: Í samræmi við 42. gr. laga nr. 75/1997 áskilur Datatech sér eignarrétt hins selda þar til kaupverðið er að fullu greitt og áskilur sér rétt til að taka hið selda til baka eða selja það nauðungarsölu með vísan til 4. tl. 38. gr. sömu laga. Kaupandi hefur kynnt sér samningsákvæði þetta og samþykkir eignarréttarfyrirvara Datatech með móttöku hins selda.
- Tilboð sem þjónustukaupandi fær sent með tölvupósti er trúnaðarmál milli Datatech og þjónustukaupanda og óheimilt er að deila því á opinberum vettvangi eins og t.d. samfélagsmiðlum eða senda óviðkomandi aðilum.
- Ef ekki næst að bjarga gögnum samkvæmt áætlun en það næst hluti af þeim býðst þjónustukaupanda að fá þau gögn sem náðust skv. skráalista og er þá gefinn 10% afsláttur af heildarverði tilboðs.
- Datatech ber ekki ábyrgð á póstsendingum hjá t.d. Íslandspósti. Ef hlutur týnist eða skemmist í pósti, er það aðeins á ábyrgð flutningsaðila.
- Ef tilboð í gagnabjörgun er ekki samþykkt velur þjónustukaupandi hvort búnaðurinn verði endursendur með Dropp á afhendingarstað að eigin vali á kostnað þjónustukaupanda, sóttur til Pixla, Suðurlandsbraut 54, eða að Datatech fargi honum á öruggan hátt. Þjónustukaupandi á enga kröfu á Datatech vegna búnaðar sem fargað er að ósk hans. Við sendum verkefni frítt til baka með Íslandspósti til viðskiptavina sem samþykkja tilboð í gagnabjörgun.
Persónuvernd, trúnaður og þagnarskylda
- Viðskiptavinur samþykkir að Datatech og starfsmenn þess meðhöndli hans persónuupplýsingar sem varða hann sjálfan og afriti persónuleg tölvugögn hans tímabundið á öruggan vélbúnað fyrirtækisins á meðan unnið er í gagnabjörgun af búnaði viðskiptavinar. Öllum afritum af gögnum sem afrituð eru á vélbúnað Datatech er eytt varanlega með öruggum hætti sjö (7) dögum eftir að verkefni er lokið og gögn hafa verið afhent viðskiptavini og á viðskiptavinur engan rétt á því að fara fram á annað afrit af gögnunum eftir þann tíma.
- Datatech mun ekki undir neinum kringumstæðum afhenda þriðja aðila upplýsingar um viðskiptavini eða persónuleg gögn hans.
- Allir starfsmenn Datatech eru bundnir þagnarskyldu gagnvart þjónustukaupanda, og ber skylda til að gæta fyllsta trúnaðar varðandi gögn og málefni sem honum verður kunnugt um hjá þjónustukaupanda. Gildir þagnarskyldan bæði utan og innan fyrirtækisins og einnig þótt starfsmaður Datatech láti af störfum hjá fyrirtækinu.
Fyrirvari
Vinsamlegast athugaðu að þessi skýrsla og tilboð er trúnaðarmál milli Datatech ehf og viðskiptavinar. Óheimilt er að deila því á opinberum vettvangi eða með óviðkomandi. Ef þú hefur fengið þetta tilboð sent fyrir mistök biðjum við þig að gæta fyllsta trúnaðar og eyða því og láta sendanda vita. Misnotkun getur varðað bótaábyrgð og refsingu auk þess sem viðtakanda ber lögum samkvæmt að tilkynna sendanda hafi tölvupóstur eða viðhengi hans ranglega borist honum.
Skilmálar þessir tóku gildi: 01.04.2012. Síðast uppfært: 11.03.2026. Datatech áskilur sér rétt til að bæta við skilmálum eftir þörfum.
*Allt efni á vefsvæði Datatech.is er birt með fyrirvara um innsláttarvillur.