Í yfir áratug höfum við hjálpað íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum við að endurheimta óaðgengileg gögn. Með sérhæfðri gagnabjörgun eru gögn endurheimt eftir að þau hafa glatast, verið eytt af slysni, skemmst eða orðið óaðgengileg af einhverjum sökum. Við björgum gögnum af hörðum diskum, SSD/NVMe diskum, RAID stæðum, minniskortum, USB lyklum og snjalltækjum.
Við björgum gögnum af öllum gerðum harðra diska, óháð stýrikerfi. Gagnabjörgunarverkefnum höfum við skipt upp í þrjá flokka eftir því hversu mikið þarf að gera til þess að bjarga gögnum. Verð á gagnabjörgun fer eftir gagnamagni, tegund disks, varahlutaverðum og eftir því hvers konar bilun er um að ræða og hvaða aðferð þarf að beita.
Við björgum gögnum af SSD (Solid State Drive) diskum. SATA SSD, NVMe SSD diskum, M.2 SSD diskum og PCIe SSD diskum. Við búum yfir sérhæfðum búnaði til þess að afrita gögn beint af Nand/Flash kubbunum sem liggja á PCB plötum SSD diska.
Við búum yfir sérhæfðum tækjabúnaði til þess að bjarga gögnum af RAID stæðum og NAS boxum. Hægt er að framkvæma RAID gagnabjörgun þegar skráargeiri (e.partition) af RAID stæðunni kemur ekki fram í Windows eða Disk utility í MAC OS og einnig þegar t.d. tveir diskar eða fleiri eru bilaðir í RAID stæðu.
Við getum bjargað gögnum af flest öllum biluðum eða dauðum minnis- og myndavélakortum. Við getum bjargað eyddum gögnum svo lengi sem ekki er búið að yfirskrifa þau.
Við getum bjargað gögnum af öllum gerðum af snjallsímum og snjalltækjum. Apple, Samsung, Huawei, Nokia, Sony, LG, HTC o.fl. Hvort sem þeir virka, eru með brotna skjái, rakaskemmdir eða skemmdir á annan hátt.
Við björgum gögnum af öllum gerðum af USB minniskubbum, hvort sem gögnum hefur verið eytt en ekki yfirskrifuð, kubburinn dauður eða kemur ekki fram í stýrikerfi.
Við björgum gögnum af fartölvum sem eru með innbyggða eða "onboard" SSD/NVMe diska eins og allar nýlegar Apple tölvur nota og einnig sumar nýlegar PC fartölvur.
Faglegur búnaður
Við notum PC-3000 tæknibúnað frá ACE lab, sem er leiðandi fyrirtæki í gagnabjörgun á heimsvísu. Þetta tryggir að þinn búnaður er meðhöndlaður með bestu lausnum sem fáanlegar eru sem tryggir hámarks líkur á góðum árangri.

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annars staðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og búum yfir sérþekkingu í faginu og notum sérhæfðan gagnabjörgunarbúnað frá ACE lab, DeepSpar og HddSurgery til að tryggja hámarks árangur.
Hafa samband