Hvað leynist eiginlega innan í hörðum diski?
Til að átta sig á því hvers vegna gagnabjörgun er jafn flókin og raun ber vitni, þarf fyrst að skilja hvernig harður diskur starfar.
Inni í hörðum disk er ein eða fleiri diskaplata sem snýst á ógnarhraða eða að jafnaði 5.400 til 7.200 snúningum á mínútu. Gögnin þín eru vistuð á örþunnu segullagi á yfirborði þessara platna. Leshaus svífur yfir plötunum á gríðarlega litlu bili — um 10 nanómetrum, sem samsvarar um það bil þúsundasta hluta af þykkt mannshárs.
Þetta er því afar fínstilltur vélbúnaður og því miður mjög viðkvæmur. Þegar eitthvað út af bregður geta afleiðingarnar orðið afdrifaríkar ef ekki er rétt haldið á málum strax í upphafi.
Algengustu bilanirnar
Leshaus bilar (Head Crash): Þetta er meðal alvarlegustu bilana sem upp geta komið. Leshausinn, sem á aldrei að snerta diskaplöturnar, „lendir“ á þeim af afli — annaðhvort vegna höggs, falls eða einfaldlega vegna slits. Þegar hausinn snertir plötuna á þessum mikla snúningshraða getur hann í sumum tilfellum hreinlega skafið segullagið af yfirborðinu. Gögnin sem þar voru hreinlega tætast í sundur og breytast í ryk.
Hringskemmdir (Rotational Scoring): Ef diskurinn er látinn ganga áfram eftir slíka bilun grafar leshausinn djúpar skurði í plötuna, hring eftir hring. Því lengur sem tækið er í gangi, þeim mun meiri verður eyðileggingin.
Bilaður mótor eða snælda: Stundum neitar diskurinn hreinlega að snúast. Það getur stafað af bilun í mótor eða að leshausinn hafi fests við diskaplötuna (svokallað stiction). Slíkt krefst sérhæfðra verkfæra og nákvæmni — það dugar ekki að „opna og prófa sig áfram“.
Rafeindabilanir og stýrikort: Stýrikortið (PCB) er heilinn í tækinu. Það geymir sérstakan fastbúnað (firmware) sem er einstakur fyrir hvern og einn disk. Það er algengur misskilningur að hægt sé að skipta um kort með því að taka eins kort af öðrum diski; án þess að flytja yfir nákvæmar upplýsingar úr fastbúnaðinum mun diskurinn ekki virka.
Rökfræðilegar skemmdir (Logical Damage): Stundum er vélbúnaðurinn í lagi en skráakerfið spillist. Þá glatast upplýsingar um hvar skrár og möppur eru hýstar. Þetta er sambærilegt við bók þar sem efnisyfirlitið hefur verið rifið út — sagan er þarna ennþá, en það er gríðarvinnan að finna réttu síðurnar.
Gullna reglan: Ef þú heyrir smelli, skruðninga eða tíst í disknum — slökktu strax á honum.
Af hverju dugar „venjulegt tölvuverkstæði“ ekki til?
Hjá Datatech höfum við of oft fengið í hendurnar diska sem hafa verið meðhöndlaðir af ófaglærðum aðilum. Niðurstaðan er nánast undantekningarlaust sú sama: Skemmdirnar hafa aukist svo mikið að björgun er orðin ómöguleg.
Hér eru algengustu mistökin:
Diskur opnaður í óhreinu umhverfi: Venjulegt loft er fullt af svifögnum. Ef eitt rykkorn lendir á milli leshauss og plötu virkar það eins og sandpappír þegar diskurinn fer í gang.
Leshaus skipt út án réttra tækja: Leshausar eru svo viðkvæmir að ef þeir snertast innbyrðis við uppsetningu eru þeir ónýtir. Gamaldags aðferðir með gúmmíi eða pappír eru löngu úreltar og stórhættulegar.
Röng meðhöndlun stýrikorts: Með því að setja rangt PCB kort á diskinn er hætta á að skrifað sé yfir mikilvæg kerfissvæði sem gerir gögnin varanlega óaðgengileg.
Ítrekaðar ræsingar: Fólk vonar oft að diskurinn „lagist“ við að prófa aftur og aftur. Ef vélræn bilun er til staðar, eyðileggur hver sekúnda í gangi plöturnar sem geyma raunverulega gögnin enn frekar.
Hvernig vinnur Datatech?
Við höfum fjárfest í sérhæfðum tæknibúnaði frá Acelab og komið upp bestu aðstöðu sem völ er á til að tryggja hámarksárangur í gagnabjörgun:
Hreinbúr (cleanbooth): Við notum sérstök SentryAir hreinbúr með HEPA-síum sem eyða 99,97% allra svifagna. Þetta er eina örugga umhverfið til að opna harðan disk.
PC-3000 gagnabjörgunar búnaður: Við notum það besta í bransanum á þessu sviði frá ACE Lab. Búnaðurinn gerir okkur kleift að eiga bein samskipti við fastbúnað disksins, framhjá stýrikerfi tölvunnar, og lesa gögn geira fyrir geira (sector-by-sector) án þess að ofgera viðkvæmum íhlutum.
Nákvæmnisverkfæri frá HDDSurgery: Við notum sérsmíðaða leshausakamba fyrir hverja tegund diska. Þetta tryggir að hægt sé að fjarlægja og setja í nýja leshausa án þess að þeir komist í snertingu við diskaplöturnar eða hver annan.
Hvað átt þú að gera ef diskurinn bilar?
Ef þú grunar að harði diskurinn sé að gefa sig, eða ef þú heyrir í honum óhljóð, er ráðið einfalt:
Slökktu strax á tölvunni.
Ekki reyna að tengja hann aftur.
Leitaðu til sérfræðinga.
Fyrsta tilraunin til gagnabjörgunar er alltaf sú mikilvægasta. Með hverri misheppnaðri tilraun ófaglærðra minnka líkurnar á að gögnin sjái aftur dagsins ljós.
Ertu með bilaðan disk? Hafðu samband við okkur hjá Datatech. Við bjóðum upp á faglega greiningu og raunhæft mat á björgunarmöguleikum áður en ráðist er í aðgerðir.
Þarftu aðstoð við gagnabjörgun?
Fyrsta skrefið er að senda okkur þjónustubeiðni, hafðu samband við okkur strax í dag.
Hafa samband