Gagnabjörgum af öllum miðlum
Í yfir áratug höfum við hjálpað Íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum við að endurheimta óaðgengileg gögn. Með sérhæfðri gagnabjörgn eru gögn endurheimt eftir að þau hafa glatast, verið eytt af slysni, skemmst eða orðið óaðgengileg af einhverjum sökum. Við björgum gögnum af hörðum diskum, SSD/ NVMe diskum, RAID stæðum, minniskortum, USB lyklum og snjalltækjum.
Harðir diskar (HDD)
Við björgum gögnum af öllum gerðum harðra diska, óháð stýrikerfi. Gagnabjörgunarverkefnum höfum við skipt upp í þrjá flokka eftir því hversu mikið þarf að gera til þess að bjarga gögnum. Verð á gagnabjörgun fer eftir gagnamagni, tegund disks, varahlutaverðum og eftir því hverskonar bilun er um að ræða og hvaða aðferð þarf að beita.
Við björgum gögnum af
- Diskum með vélrænar bilanir (leshaus, mótor, plötur)
- Diskum með rafrænar bilanir (PCB, firmware)
- Diskum með skemmdum svæðum
- Diskum með SMART villur
- Diskum sem hafa verið forsniðnir óvart
Algeng einkenni
- Diskur snýst ekki
- Heyrast smellir eða klikk hljóð
- Diskur finnst ekki í BIOS eða stýrikerfi
- Tölvan mjög hæg, sér gögn en ekki hægt að afrita eða færa til gögn
SSD diskar
Við björgum gögnum af SSD (Solid State Drive) diskum. SATA SSD, NVMe SSD diskum, M.2 SSD diskum og PCIe SSD diskum. Við búum yfir sérhæfðum búnaði til þess að afrita gögn beint af Nand/Flash kubbunum sem liggja á PCB plötum SSD diska.
Við björgum gögnum af
- 2,5" SATA SSD diskum
- M2 SSD diskum
- NVMe SSD diskum
- Apple SSD diskum
- Onboard SSD diskum
Algeng einkenni
- Diskur kemur ekki fram í stýrikerfi
- Diskur kemur fram en sem 0Mb.
- Tölvan ræsir ekki inn í stýrikerfi
RAID kerfi
Við búum yfir sérhæfðum tækjabúnaði til þess að bjarga gögnum af RAID stæðum og NAS boxum. Hægt er að framkvæma RAID gagnabjörgun þegar skráargeiri (e.partition) af RAID stæðunni kemur ekki fram í Windows eða Disk utility í MAC OS og einnig þegar t.d. tveir diskar eða fleiri eru bilaðir í RAID stæðu.
Við björgum af
- RAID 0, 1, 5, 6, 10 og fleiri
- NAS kerfi (Synology, QNAP, o.fl.)
- Server RAID stýringar
- Endurbygging á flóknum uppsetningum
- Raid stæðum með marga bilaða diskar samtímis
Algeng einkenni
- Fleiri en einn diskur bilaður,
- RAID uppsetning skemmd (config)
- Raid Controller bilaður
- Gögnum var óvart eytt
- Stæðan kemur ekki fram í stýrikerfi
Minniskort
Við getum bjargað gögnum af flest öllum biluðum eða dauðum minnis- og myndavélakortum. Við getum bjargað eyddum gögnum svo lengi sem ekki er búið að yfirskrifa þau.
Við björgum af
- SD og microSD kortum
- CompactFlash (CF) kort
- Sony Memory Stick
- XQD og CFexpress kort
- Vökva og raka skemmdum kortum
Algeng einkenni
- Kort þekkist ekki
- Villur við lestur
- Skemmdar skrár, línur á myndum
- Gögnum óvart eytt
Snjallsímar
Við getum bjargað gögnum af öllum gerðum af snjallsímum og snjalltækjum. Apple, Samsung, Huawei, Nokia, Sony, LG, HTC o.fl. Hvort sem þeir virka, eru með brotna skjái, rakaskemmdir eða skemmdir á annan hátt.
Við björgum af
- iPhone, Samsung og öðrum Android símum.
- Vökva eða raka skemmdir símar
- Símum og snjalltækjum sem hafa orðið óaðgengilegir við uppfærslu
- Snjalltækjum sem hafa lent í slysum eru brotin eða skemmd með öðrum hætti.
Algeng einkenni
- Dauður og fer ekki í gang
- Brotinn skjár
- Datt í vatn eða annan vökva
- Svartur skjár
USB lyklar
Við björgum gögnum af öllum gerðum af USB minniskubbum, hvort sem gögnum hefur verið eytt en ekki yfirskrifuð, kubburinn dauður eða kemur ekki fram í stýrikerfi.
Við björgum gögnum þegar
- Rafrænar bilanir
- USB tengi eru ónýt
- Firmware vandamál
- NAND flash bilanir
- Vatnsskemmdir
Algeng einkenni
- Lykill þekkist ekki
- Brotinn tengill
- Skemmdar skrár
- Sést ekki í stýrikerfi
Fartölvur með innbyggða SSD/NVMe diska
Við björgum gögnum af fartölvum sem eru með innbyggða eða "onboard" SSD/ NVMe diska eins og allar nýlegar Apple tölvur nota og einnig sumar nýlegar PC fartölvur.
Við björgum ad
- Apple MacBook (M1, M2, M3, Intel)
- Fartölvur með innbyggða NVMe/SSD diskar
- Lóðaðir (soldered) SSD kubbar á móðurborði
- T2/M-chip dulkóðaðir diskar (ef viðskiptavinur útvegar lykilorð)
- PC fartölvur með onboard SSD/ NVMe
Algeng einkenni
- Fartölva ræsir ekki inn í stýrikerfið
- Vökva eða rakaskemmdir
- Blár skjár
- Bilað móðurborð
Faglegur búnaður
Við veljum það besta fyrir hámarks árangur
Við notum PC-3000 tæknibúnað frá ACE Lab, sem er leiðandi fyrirtæki í gagnabjörgum á heimsvísu. Þetta tryggir að þinn búnaður er meðhöndlaður með bestu lausnum sem fáanlegar eru sem tryggir hámarks líkur á góðum árangri.

Hafðu samband við okkur
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annarstaðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og búum yfir sérþekkingu í faginu og notum sérhæfðan gagnabjörgunarbúnað frá Acelab, DeepSpar og HddSurgery til að tryggja hámarks árangur.
Hafa samband





