Hoppa í aðalefni
Um okkur

Sérfræðingar í gagnabjörgun

Okkar leiðarljós er öryggi gagna okkar viðskiptavina sem við sköpum með sérfræðiþekkingu, faglegum vinnubrögðum og framúrskarandi þjónustu.

Sagan okkar

Frá hugmynd að veruleika

Datatech var stofnað árið 2012 þegar stofnandi fyrirtækisins uppgötvaði, meðan hann starfaði við tölvuviðgerðir og þjónustu hjá stóru tæknifyrirtæki, að engin fagleg lausn var í boði á Íslandi fyrir flókna gagnabjörgun. Hann fór því að rannsaka hvaða lausnir væru til á markaðnum og byrjaði svo á að sækja sér sérhæfða menntun hjá Acelab, sem eru leiðtogar í iðnaðinum á heimsvísu, og stofnaði í framhaldinu Datatech og byrjaði að bjóða upp á þessa sérhæfðu þjónustu á Íslandi.

Markmið Datatech er að vera leiðandi fyrirtæki á sviði gagnabjörgunar, gagnaafritunar og gagnaöryggis. Datatech leggur sig fram um að vera samherji sem þú getur treyst fyrir þínum gögnum og viðskiptum.

Einkunnarorð Datatech eru trúnaður, öryggi og fagmennska, en þau gilda fyrir alla okkar starfsemi.

Í dag hefur fyrirtækið aðstoðað yfir 4.500 viðskiptavini — bæði einstaklinga og fyrirtæki — við að endurheimta mikilvæg gögn og hjálpað mörgum þeirra að tryggja sitt gagnaöryggi til framtíðar til að koma í veg fyrir að lenda aftur í gagnatapi.

Datatech - Sérfræðingar í gagnabjörgun og gagnaöryggi
0%
Success rate
0+
Happy customers
0+
Years of experience
0hrs
Response time
Andri - Stofnandi og eigandi Datatech
Stofnandi & eigandi

Andri Steinn Jóhannsson

Andri hefur starfað í upplýsingatæknigeiranum allan sinn starfsferil sem hófst hjá Opnum kerfum árið 2003. Síðar starfaði hann sem DevOps sérfræðingur hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Median, kerfisstjóri hjá Point Transaction Systems, og er einnig sérfræðingur í stafrænum rannsóknum (Digital Forensics) hjá ríkinu.

Hann er með MBA gráðu frá UHI háskólanum og hefur lokið námi í kerfisstjórnun og stafrænum rannsóknum.

Virkar vottanir

Acelab (PC-3000)CellebriteMicrosoft
Gildin okkar

Traust í hverju skrefi

Trúnaður

Allir starfsmenn Datatech eru bundnir þagnarskyldu gagnvart þjónustukaupanda og ber þeim skylda til að gæta fyllsta trúnaðar varðandi gögn og málefni sem þeim verður kunnugt um hjá þjónustukaupanda. Gildir þagnarskyldan bæði utan og innan fyrirtækisins og einnig þótt starfsmaður Datatech láti af störfum hjá fyrirtækinu.

Öryggi

Við fylgjum ISO 27001 stöðlum í meðhöndlun gagna og erum í vottunarferli til að öðlast ISO 27001 vottun í gegnum Vanta.com. Við geymum gögn viðskiptavina aðeins á meðan verið er að vinna með þau og þá alltaf á dulkóðuðum miðlum og með öruggri aðgangsstýringu.

Fagmennska

Við notum aðeins bestu fáanlegu lausnirnar á markaðnum við okkar vinnu og við endurnýjum sérhæfðan tækjabúnað þegar nýjar útgáfur eru gefnar út. Við pössum að vera alltaf með nýjustu útgáfur af hugbúnaði og fylgjum stöðluðum verkferlum við meðhöndlun gagna viðskiptavina til að tryggja að allir fái sömu meðferð hjá okkur og farið sé eftir persónuverndarlögum.

Faglegur búnaður

Vottuð sérfræðiþekking

Við notum PC-3000 tæknibúnað frá ACE Lab, sem er leiðandi fyrirtæki í gagnabjörgun á heimsvísu. Sérfræðingar okkar eru með virkar vottanir og yfir 22 ára starfsreynslu í faginu. Þetta tryggir að þinn búnaður er meðhöndlaður með bestu lausnum sem fáanlegar eru.

PC-3000 by ACE Lab — Leiðandi gagnabjörgunarbúnaður notaður af Datatech sérfræðingum á Íslandi
ACE Lab - Leiðandi framleiðandi gagnabjörgunarbúnaðar á heimsvísu
Þjónusta

Hvað gerum við?

Við byrjuðum sem gagnabjörgunarþjónusta en höfum stækkað verulega og bjóðum nú upp á alhliða lausnir í gagnaöryggi.

Gagnabjörgun

Endurheimtum gögn af hörðum diskum, SSD diskum, RAID kerfum, minniskortum, snjallsímum og USB kubbum.

Skýjalausnir

Microsoft 365 áskriftir og skýjaþjónusta fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Gagnaafritun

Sjálfvirkar afritunarlausnir og speglun gagna til að vernda mikilvægar upplýsingar.

Gagnaöryggi

Veiruvarnir, DNS varnir og lykilorðastjórnun (NordPass) til að tryggja öryggi fyrirtækja.

Samstarfsaðilar

Við vinnum með þeim bestu

PC-3000 (Acelab) logo
Seagate logo
Western Digital logo
DeepSpar logo
Af hverju Datatech?

Af hverju velja okkur?

  • Sérfræðingar okkar hafa starfað við gagnabjörgun í yfir 22 ár
  • Notum faglegan búnað frá Acelab (PC-3000) — leiðandi í gagnabjörgunartækni
  • Í ferli að öðlast ISO 27001 vottun fyrir gagnaöryggi
  • Gögnin þín eytt 7 dögum eftir afhendingu — trúnaðarsamningar í boði
  • Stærstu tæknifyrirtæki landsins treysta okkur fyrir gögnum sinna viðskiptavina
  • Íslensk þjónusta á Íslandi — Suðurlandsbraut 54, Reykjavík

Þarftu aðstoð?

Hafðu samband við okkur og fáðu fagmenn til að bjarga gögnunum þínum.

Hafa samband
Reviews

What do our customers say?

We're proud of the service we provide. Here are a few reviews from our customers.

Þorgeir ArnórssonGoogle review

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Google
Leifur Reynir BjörnssonGoogle review

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.

Google
Bjarni Frímann KarlssonGoogle review

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Google
Helga Lilja MagnúsdóttirGoogle review

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Google
Gunnar Árnason, HljóðmaðurGoogle review

Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.

Google
Ólafur ÞórGoogle review

Sendi diskinn minn til Datatech eftir að hann hætti skyndilega að virka. Fékk skráarlista til staðfestingar og öll gögnin mín voru björguð. Takk kærlega!

Google
Kennitala: 420115-0240
VSK nr: 119183
D-U-N-S: 500799513
Sími: 571-9300