Við búum yfir sérhæfðum tækjabúnaði til þess að bjarga gögnum af RAID stæðum. Hægt er að framkvæma RAID gagnabjörgun þegar skráargeiri (e.partition) af RAID stæðunni kemur ekki fram í Windows eða Disk utility í MAC OS og einnig þegar t.d. tveir diskar eru bilaðir í RAID stæðu eða jafnvel fleiri.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.






Við tökum alla diskana úr RAID stæðunni og skoðum hvern og einn með tilliti til vélrænna skemmda. Ef diskar eru skemmdir eru þeir lagfærðir eða klónaðir yfir á nýja diska.
Allir diskarnir eru síðan tengdir við sérhæfðan RAID gagnabjörgunarbúnað þar sem stæðan er endurbyggð í sýndarumhverfi og gögnin svo flutt yfir á nýjan geymslumiðil.
Sérfræðingar okkar hafa yfir 22 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna. Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu síðan árið 2012.
Þegar þú lendir í því óhappi að ná ekki sambandi við RAID stæðuna þína og gögnin eru í hættu, þá er mikilvægt að leita strax til fagaðila og ekki láta venjuleg tölvuverkstæði reyna gagnabjörgun fyrst, þar sem þau eru hvorki með réttu tækin eða tæknilega þekkingu til að ná árangri.
Við höfum fengið mörg verkefni til okkar sem hafa farið fyrst til venjulegra tölvuverkstæða þar sem tilraunastarfsemi þeirra hefur gert illt verra og í jaðartilvikum gert gagnabjörgun ómógulega.
Við björgum gögnum af öllum algengum RAID gerðum, þar á meðal:
RAID kerfi eru oftast notuð af fyrirtækjum til að geyma mikilvæg gögn. Við skiljum að gagnatap og niðritími getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir reksturinn. Við bjóðum upp á neyðarþjónustu fyrir fyrirtæki sem þurfa skjóta aðstoð.

Svör við algengum spurningum um gagnabjörgun af RAID kerfum
Tíminn fer eftir flækjustigi og gagnamagni. Við gefum tímaáætlun eftir bilanagreiningu. RAID kerfi geta tekið lengri tíma en stakir diskar vegna þess að vinna þarf með marga diska samtímis og endurbyggja arraið.
Verð á gagnabjörgun fer eftir gagnamagni, tegund RAID kerfa, varahlutaverðum og eftir því hvers konar bilun er um að ræða og hvaða aðferð þarf að beita. Við gefum fast verð eftir bilanagreiningu, engar óvæntar viðbætur.
Við afhendum gögnin á nýjum diskum sem hægt er að kaupa af okkur, á diskum sem viðskiptavinur lætur af hendi, eða með rafrænum hætti fyrir smærri gagnamagn (undir 100GB). Við sendum einnig HTML skrá með lista yfir öll gögn sem fundust.
Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri
Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.
Þorgeir Arnórsson
Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Gunnar Árnason, Hljóðmaður
Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.
Leifur Reynir Björnsson
Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar
Komdu með tækið til Pixlar
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Pixlar – Móttökustaður
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00 – 18:00
Laugardaga: 11:00 – 15:00
Einnig er hægt að senda búnaðinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, þó þér hafi verið sagt annars staðar að ekkert væri hægt að gera til að bjarga gögnunum þínum. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og búum yfir sérþekkingu í faginu og notum sérhæfðan gagnabjörgunarbúnað frá ACE lab, DeepSpar og HddSurgery til að tryggja hámarks árangur.