Gagnabjörgun af SSD/Flash diskum

Við björgum gögnum af SSD / Flash / NAND (Solid State Drive) diskum. Við eigum sérhæfðan búnað til að afrita gögn beint af NAND/Flash kubbunum sem eru á PCB-plötum SSD-diska.

Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Gagnabjörgun af SSD diskum - Datatech

Samstarfsaðilar

PC-3000 gagnabjörgunarbúnaður

Af hverju að velja sérfræðinga í gagnabjörgun?

Gagnabjörgun af SSD-diskum er flókin og í raun mun erfiðari viðfangs en gagnabjörgun af hefðbundnum hörðum diskum. Flestir SSD-diskar eru með innbyggða dulkóðun (e. onboard encryption) sem gerir gagnabjörgun erfiðari. Ef ekki tekst að ná dulkóðunarlyklinum af CPU disksins er ekki hægt að bjarga gögnunum.

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun. Við höfum starfað í faginu síðan 2012 og höfum bæði tækjabúnað og þekkingu til að klára málin hérlendis.

Sérfræðingar okkar hafa meira en 22 ára starfsreynslu af flóknum gagnabjörgunarverkefnum. Þeir hafa hlotið þjálfun hjá leiðandi fyrirtækjum í faginu, svo sem ACE lab, og eru með gildar vottanir frá þeim.

22+
Ára starfsreynsla sérfræðinga
94%
Árangur
2012
Stofnað
ACE lab
Vottað

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli

Við gagnabjörgun af SSD-diskum skipta fyrstu aðgerðir öllu máli. Leitaðu því strax til fagaðila frekar en á venjulegt tölvuverkstæði, því tæknimaðurinn þarf að vita nákvæmlega hvað hann er að gera.

Ef þú vilt auka líkurnar á að endurheimta eydd gögn af tölvu með SSD- eða NVMe-diski er öruggast að taka tölvuna strax úr sambandi við rafmagn, ekki slökkva á henni. Kipptu henni bara úr sambandi, því fyrr því betra.

  • Ekki reyna „viðgerðir“ af YouTube á disknum
  • Ekki nota ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
  • Ekki setja diskinn í frystinn
  • Ekki fara með diskinn á venjulegt tölvuverkstæði
  • Ekki taka diskinn úr tölvunni og reyna að lesa hann í annarri tölvu
  • Taktu tölvuna strax úr sambandi við rafmagn, ekki slökkva á henni

Við björgum gögnum af öllum gerðum SSD diska

SATA SSD-diskar
NVMe SSD-diskar
M.2 SSD-diskar
PCIe SSD-diskar
Innbyggðir (onboard) SSD-diskar
MacBook SSD-diskar
USB SSD-diskar

Við björgum gögnum í þessum tilfellum:

  • Bilanir í NAND flash-minni
  • Bilanir í stýringu (controller)
  • Vandamál í fastbúnaði (firmware)
  • Dulkóðuð gögn (BitLocker, FileVault)
  • Vandamál vegna TRIM og wear leveling
  • Innbyggð dulkóðun (onboard encryption)

Algeng einkenni

  • Diskurinn finnst ekki í stýrikerfinu
  • BIOS/UEFI þekkir ekki diskinn
  • Tölvan ræsist ekki
  • Mjög hægur SSD-diskur
  • Skemmdar skrár eða möppur
  • Diskurinn forsniðinn eða gögnum eytt óvart

Eyddir þú óvart gögnum af SSD disk?

Erfiðara er að endurheimta eydd gögn af SSD-diskum vegna svokallaðrar TRIM-virkni eða „garbage collection“. Hún eyðir gagnablokkum varanlega eftir að stýrikerfið sendir skipun um eyðingu.

Harðir diskar fela gögnin aðeins fyrir stýrikerfinu án þess að eyða þeim varanlega, en SSD-diskar eyða þeim alveg.

Mikilvægt: Ef þú vilt auka líkurnar á að endurheimta eydd gögn af tölvu með SSD eða NVMe-diski er öruggast að taka tölvuna strax úr sambandi við rafmagn, ekki slökkva á henni. Kipptu henni bara úr sambandi, því fyrr því betra. Alls ekki taka diskinn úr og reyna að lesa hann í annarri tölvu, því þá eyðast gögnin varanlega.

Sérhæfður gagnabjörgunarbúnaður hjá Datatech

Algengar spurningar um SSD gagnabjörgun

Svör við algengum spurningum um gagnabjörgun af SSD diskum

Hver er munurinn á hörðum disk og SSD disk?

SSD-diskar geyma gögn á allt annan hátt en harðir diskar. Þeir nota flash-minni og í þeim eru hvorki segulplötur, leshausar né aðrir hreyfanlegir hlutar. Þeir þola því betur högg og hnjask. Flestir SSD-diskar eru með innbyggða dulkóðun sem gerir gagnabjörgun flóknari. SSD-diskar eru um það bil hundrað sinnum hraðari en harðir diskar.

Er hægt að bjarga gögnum eftir formatting á SSD?

Það tekst afar sjaldan að bjarga gögnum af forsniðnum SSD-diski, því SSD-diskar virka allt öðruvísi en harðir diskar. Flestir nýlegir SSD-diskar eru með TRIM-virkni eða „garbage collection“ sem eyðir gagnablokkum varanlega eftir að stýrikerfið sendir skipun um eyðingu. Harðir diskar fela gögnin aðeins fyrir stýrikerfinu án þess að eyða þeim varanlega.

Hvað kostar gagnabjörgun af SSD disk?

Verð á gagnabjörgun af SSD-diski fer eftir ástandi disksins. Gerðir SSD-diska eru óteljandi og því metum við hvert verkefni sérstaklega. Við gerum fast tilboð eftir bilanagreiningu. Ef tilboði er hafnað greiðir viðskiptavinur skoðunargjald samkvæmt verðskrá.

Af hverju getur SSD gagnabjörgun verið kostnaðarsöm?

SSD-gagnabjörgun krefst sérhæfðs vélbúnaðar til að lesa beint af NAND/Flash kubbum. Auk þess þarf sérhæfðan hugbúnað til að vinna úr dulkóðuðum gögnum og endurbyggja skráarkerfi.

  • Sérhæfður búnaður (PC-3000 SSD, DeepSpar)
  • NAND-lesari til að afrita gögn beint af flash-kubbum
  • Sérhæfður hugbúnaður frá ACE lab o.fl.
  • Nálgast þarf hvert verkefni á sinn hátt því SSD-diskar eru afar ólíkir
  • Starfsfólk þarf sérmenntun og sækir árlega námskeið hjá ACE lab og öðrum framleiðendum
  • Áskriftir að sérhæfðum hugbúnaði sem endurnýjast árlega
Gagnabjörgun af SSD og NVMe diskum

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af þjónustunni og árangrinum

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Aðrar gagnabjörgunarþjónustur

Við björgum einnig gögnum af öðrum gerðum geymslumiðla

Pixlar móttökustaður fyrir gagnabjörgun

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?

1

Stofnaðu þjónustubeiðni

Fylltu út eyðublaðið á vefnum okkar

2

Komdu með tækið til Pixla

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

3

Fáðu bilanagreiningu og verðmat

Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu

Móttaka hjá Pixlum

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

Virka daga: 10:00–18:00

Laugardaga: 11:00–15:00

Einnig er hægt að senda búnaðinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.

Tapaðir þú gögnum af SSD disk?

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, líka þótt þér hafi verið sagt annars staðar að ekkert sé hægt að gera. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og notum sérhæfðan búnað frá ACE lab, DeepSpar og HddSurgery til að ná sem bestum árangri.