Gagnabjörgun af minniskortum

Við björgum gögnum af biluðum eða dauðum SD, SDHC, SDXC, Micro SD, Micro SDHC, xD og CompactFlash-minniskortum. Einnig eftir að kortið hefur verið forsniðið (formattað) óvart eða gögnum eytt.

Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Gagnabjörgun af minniskortum - Datatech

Samstarfsaðilar

Við björgum af öllum helstu gerðum minniskorta

SD kort

Standard SD, SDHC, SDXC

microSD kort

Micro SD, SDHC, SDXC

CompactFlash

CF Type I og II

CFast kort

Myndbandsupptökur fagfólks

XQD kort

Hraðvirkar atvinnumyndavélar

CFexpress

Nýjasta kynslóðin

Gagnabjörgun af minni og myndavélakortum

Við hjálpum fagfólki og áhugafólki

Á minniskortum eru oft ómetanlegar minningar og mikilvæg gögn. Við höfum hjálpað mörgum ljósmyndurum, kvikmyndagerðarfólki og einstaklingum að bjarga dýrmætum myndum og myndböndum.

Ljósmyndun

Brúðkaupsmyndir, viðburðir, portrettmyndir

Myndbandsupptökur

Kvikmyndagerð, viðburðir, YouTube

Drónaupptökur

DJI, Mavic og aðrir drónar

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!

Ef myndir eða gögn hafa glatast af minniskortinu skaltu hætta strax að nota það. Nýjar myndir og ný gögn geta skrifast yfir gögnin sem þú vilt bjarga.

Hafðu strax samband og fáðu ráð. Það eykur líkurnar á að öll gögnin bjargist.

  • Ekki taka fleiri myndir á kortið eftir að gögn hafa glatast
  • Ekki nota ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
  • Ekki forsníða (formatta) kortið aftur
  • Ekki reyna að laga kortið upp á eigin spýtur
  • Ekki setja kortið í aðra myndavél til að prófa

Við björgum gögnum í þessum tilfellum:

  • Rafeindabilanir í minniskortum
  • Skemmdir vegna vatns eða hita
  • Óviljandi forsníðing (formatting)
  • Skemmdar skrár og möppur
  • Kort sem þekkist ekki í tölvu
  • Villur við lestur
  • Óviljandi eyðing mynda eða myndbanda
  • Skemmt skráarkerfi

Algeng einkenni

  • Kortið þekkist ekki í myndavél eða tölvu
  • Villur við lestur mynda
  • Skemmdar eða ólæsanlegar skrár
  • Kortið biður um að vera forsniðið (formattað)
  • Gögnin hurfu eftir að kortið var fjarlægt
  • Kortið bilaði á meðan á myndatöku stóð

Af hverju að velja sérfræðinga?

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur starfað í faginu síðan 2012. Við höfum bæði tækjabúnað og þekkingu til að klára málin hérlendis.

Sérfræðingar okkar hafa meira en 22 ára starfsreynslu af flóknum gagnabjörgunarverkefnum og hafa hlotið þjálfun og vottanir hjá leiðandi fyrirtækjum í faginu, svo sem ACE lab.

Við vinnum þannig að upprunalegu gögnin eru aldrei í hættu á meðan á gagnabjörgun stendur.

Gagnabjörgun af minni og myndavélakortum
22+
Ára starfsreynsla sérfræðinga
93%
Árangur
2012
Stofnað
ACE lab
Vottað

Spurt og svarað

Hvað gerist eftir að ég kem með myndavélakort í gagnabjörgun?

Við skoðum kortið og gerum bilanagreiningu. Þú færð verðmat og upplýsingar um líkur á árangri áður en við byrjum. Ef þú samþykkir tilboðið byrjum við strax á gagnabjörguninni.

Hvað kostar gagnabjörgun af minniskortum?

Verðið fer eftir tegund bilunar og því hve mikið þarf að gera. Við gerum alltaf verðmat eftir skoðun og fast tilboð eftir bilanagreiningu, svo þú veist nákvæmlega hvað verkið kostar.

Hvernig fæ ég gögnin mín afhent?

Gögnin eru afhent á nýjum USB-diski eða þú getur sótt þau rafrænt. Við sendum þér lista yfir öll gögnin sem tókst að bjarga áður en þú sækir þau.

Hvað tekur gagnabjörgun langan tíma?

Tíminn fer eftir því hversu flókin bilunin er. Einföld verkefni taka oft 1–3 virka daga en flóknari verkefni geta tekið lengri tíma.

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Við erum stolt af þjónustunni og árangrinum

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.

Gunnar Árnason, hljóðmaður

Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Aðrar gagnabjörgunarþjónustur

Við björgum einnig gögnum af öðrum gerðum geymslumiðla

Pixlar móttökustaður fyrir gagnabjörgun af minniskortum

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?

1

Stofnaðu þjónustubeiðni

Fylltu út eyðublaðið á vefnum okkar

2

Komdu með minniskortið til Pixla

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

3

Fáðu bilanagreiningu og verðmat

Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu

Móttaka hjá Pixlum

Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík

Virka daga: 10:00–18:00

Laugardaga: 11:00–15:00

Einnig er hægt að senda minniskortið í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.

Tapaðir þú myndum eða gögnum af minniskortinu?

Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og höfum bjargað ómetanlegum myndum og myndböndum fyrir þúsundir viðskiptavina.