Gagnabjörgun af hörðum diskum
Við björgum gögnum af öllum gerðum harðra diska (HDD), óháð stýrikerfi. Við skiptum verkefnunum í þrjá flokka eftir því hve mikið þarf til að bjarga gögnunum.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.


Af hverju að velja sérfræðinga í gagnabjörgun?
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun. Við höfum starfað í faginu síðan 2012 og höfum bæði tækjabúnað og þekkingu til að klára málin hérlendis.
Sérfræðingar okkar hafa meira en 22 ára starfsreynslu af flóknum gagnabjörgunarverkefnum. Þeir hafa hlotið þjálfun hjá leiðandi fyrirtækjum í faginu, svo sem ACE lab, og eru með gildar vottanir frá þeim.
Veldu trausta aðila með þekkingu og raunverulega reynslu í faginu til að endurheimta gögnin. Varastu að fara með harða diska í gagnabjörgun á venjulegt tölvuverkstæði þar sem sérþekkinguna vantar. Við höfum margsinnis fengið verkefni sem fóru annað fyrst, þar sem rangar aðgerðir eða tilraunir höfðu útilokað gagnabjörgun.
Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli
Ef þú nærð ekki sambandi við harða diskinn og gögnin eru í hættu skaltu leita strax til fagaðila. Ekki láta venjulegt tölvuverkstæði reyna gagnabjörgun fyrst, því þar eru hvorki réttu tækin né þekkingin til að ná árangri.
Við höfum fengið mörg verkefni sem fóru fyrst á venjulegt tölvuverkstæði þar sem tilraunir gerðu illt verra og útilokuðu jafnvel gagnabjörgun.
- Ekki reyna „viðgerðir“ af YouTube á disknum
- Ekki nota ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
- Ekki setja diskinn í frystinn
- Ekki fara með diskinn á venjulegt tölvuverkstæði
- Slökktu strax á tölvunni eða aftengdu diskinn
Við björgum gögnum í þessum tilfellum:
- Vélrænar bilanir (leshaus, mótor, plötur)
- Rafeindabilanir (PCB, firmware)
- Skemmdir á yfirborði platna
- Skemmdir geirar (bad sectors) og SMART-villur
- Diskurinn forsniðinn eða gögnum eytt óvart
- Vatnsskemmdir og brunaskemmdir
Algeng einkenni
- Diskurinn snýst ekki
- Smellir eða tikk í disknum
- Diskurinn finnst ekki í stýrikerfinu
- Diskurinn er mjög hægur
- BIOS/UEFI þekkir ekki diskinn
- Skemmdar skrár eða möppur
Verðflokkar gagnabjörgunar
Verð á gagnabjörgun fer eftir gagnamagni, tegund disks, verði varahluta, því hvers konar bilun er um að ræða og hvaða aðferð þarf að beita.
Í þessum flokki eru flest „einföldu“ verkefnin. Þessi leið er aðeins fær þegar vélbúnaður disksins er í lagi, þótt á honum geti verið smávægilegar skemmdir á geirum (sectors). Dæmi: skjölum var eytt óvart eða þau tæmd úr ruslafötu stýrikerfisins, skjöl týndust án skýringa, stýrikerfið hrundi eða diskurinn var forsniðinn eða yfirskrifaður.
Í þessum flokki eru vandamálin erfiðari. Gagnabjörgun B á til dæmis við þegar harður diskur sést hvorki í BIOS né í My Computer á PC-tölvum, eða kemur ekki fram í Disk Utility á Apple-tölvum. Hún á líka við ef mikið er um skemmd svæði á disknum (skemmda geira). Í þessum flokki eru einnig slitnir leshausar og hugbúnaðarvillur í stýringu disksins.
Erfiðustu verkefnin falla í þennan flokk. Hér þarf að skipta um leshausa inni í harða disknum. Slíkar viðgerðir fara fram í rykhreinsuðu rými með yfirþrýstingi og eru tímafrekar og vandasamar. Að viðgerð lokinni er gögnunum bjargað með aðferðum B-flokksins sem lýst er hér að ofan.
* Verðdæmin miðast við algengustu diskastærðir (1–2 TB).
Af hverju getur gagnabjörgun verið kostnaðarsöm?
Gagnabjörgun er sérhæft fag. Til að geta veitt þessa þjónustu þurfum við sífellt að læra og sækjum námskeið hjá erlendum fagaðilum, því nýjungar koma fram á hverju ári. Við kaupum dýrar áskriftir að hugbúnaði sem aðeins gagnabjörgunarfyrirtæki nota og þurfum alltaf að vera með nýjustu útgáfur af sérsmíðuðum búnaði frá framleiðendum eins og ACE lab, DeepSpar og HddSurgery. Við þurfum líka öflugan tölvubúnað sem þarf að endurnýja reglulega. Við fjárfestum í nýjum búnaði á hverju ári til að fylgja þróuninni og geta veitt þessa mikilvægu neyðarþjónustu.
- Sérhæfður og dýr búnaður (PC-3000, DeepSpar, HddSurgery)
- Rykhreinsuð vinnuaðstaða fyrir viðgerðir á opnum diskum
- Varahlutalager með algengustu gerðum varahluta
- Regluleg þjálfun og vottanir frá ACE lab og öðrum framleiðendum
- Áskriftir að sérhæfðum hugbúnaði sem endurnýjast árlega

Hvað segja viðskiptavinir okkar?
Við erum stolt af þjónustunni og árangrinum
Ég get eiginlega ekki verið ánægðari með þjónustuna hjá Datatech. Allt ferlið, frá fyrstu samskiptum og þar til gögnin mín voru komin aftur í mínar hendur, var einstaklega faglegt, skýrt og traustvekjandi. Það sem mér fannst sérstaklega gott var hvað ég fékk góða upplýsingagjöf í gegnum allt ferlið. Ég vissi alltaf hvað var verið að gera, hver staðan væri og hvað tæki við næst. Engin óþarfa loforð eða tæknilegt rugl – bara skýr og fagleg samskipti. Og niðurstaðan fór langt fram úr því sem ég hafði þorað að vona. Það tókst að endurheimta gríðarlegt magn af gögnum sem skipta mig miklu máli og sem ég hélt jafnvel að væru glötuð. Þjónusta sem þessi snýst nefnilega ekki bara um skrár og gígabæt. Í gömlum gögnum geta verið ljósmyndir, skjöl og minningar sem eru einfaldlega óbætanlegar. Það er ótrúlega góð tilfinning að fá þær aftur. Ég er því ekki bara ánægð heldur innilega þakklát fyrir hvernig Datatech tók á mínu máli frá A til Ö. Fagmennska, frábær samskipti og niðurstaða sem ég hefði varla getað beðið um betri. Algjörlega fimm stjörnur frá mér og hiklaust mín bestu meðmæli.
Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.
Leifur Reynir Björnsson
Ég fékk mjög góða þjónustu. Móttaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.
Þorgeir Arnórsson
Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.
Helga Lilja Magnúsdóttir
Aðrar gagnabjörgunarþjónustur
Við björgum einnig gögnum af öðrum gerðum geymslumiðla

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?
Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefnum okkar
Komdu með tækið til Pixla
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Móttaka hjá Pixlum
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00–18:00
Laugardaga: 11:00–15:00
Einnig er hægt að senda búnaðinn til okkar frítt með Póstinum. Veldu að senda búnaðinn með Íslandspósti þegar þú stofnar þjónustubeiðni. Þú færð þá strikamerki í tölvupósti sem þú skannar á næsta pósthúsi.
Tapaðir þú gögnum af harða disknum?
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, líka þótt þér hafi verið sagt annars staðar að ekkert sé hægt að gera. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og notum sérhæfðan búnað frá ACE lab, DeepSpar og HddSurgery til að ná sem bestum árangri.











