Gagnabjörgun af USB kubbum
Við björgum gögnum af öllum gerðum USB-minniskubba, hvort sem gögnum hefur verið eytt, kubburinn er dauður eða kemur ekki fram í stýrikerfinu.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.

Við björgum af öllum gerðum USB lykla
USB 2.0
Eldri minnislyklar
USB 3.0/3.1
Hraðvirkir minnislyklar
USB-C
Nýjasta kynslóðin
Dulkóðaðir
Öryggislyklar

Brotinn USB tengill?
Ef USB-tengið er brotið er oft hægt að bjarga gögnunum. Við getum tengst beint við prentplötuna (PCB) og lesið gögnin af flash-minninu. Til þess þarf sérhæfðan búnað og reynslu sem við höfum.
Örgjörvaviðgerðir
Við gerum við prentplötur (PCB) og tengingar.
NAND lestur
Við getum lesið beint af NAND flash-kubbum ef þörf krefur.
Ekki reyna sjálfur
Röng viðgerð getur skemmt gögnin varanlega.
Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!
Ef tölvan þekkir ekki USB-lykilinn eða gögn hafa glatast skaltu hætta strax að nota hann. Ekki forsníða hann og ekki keyra gagnabjörgunarhugbúnað á honum, því það getur gert illt verra.
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun. Við höfum starfað í faginu síðan 2012 og höfum bæði tækjabúnað og þekkingu til að klára málin hérlendis.
- Ekki fara eftir ráðleggingum af YouTube
- Ekki nota ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
- Ekki reyna að laga brotinn USB-lykil upp á eigin spýtur
- Ekki fara með lykilinn á venjulegt tölvuverkstæði
- Ekki forsníða (formatta) lykilinn aftur
Við björgum gögnum í þessum tilfellum:
- Rafeindabilanir
- Vélrænar skemmdir (brotið tengi)
- Vandamál í fastbúnaði (firmware)
- Bilanir í NAND flash-minni
- Vatnsskemmdir
- Villur við forsníðingu (formatting)
- Óviljandi eyðing gagna
- Tölvan þekkir ekki USB-lykilinn
Algeng einkenni
- Tölvan þekkir ekki lykilinn
- Brotið USB-tengi
- Skemmdar skrár og möppur
- Villa við forsníðingu (formatting)
- Villan „Please insert disk“
- Skráarkerfið birtist sem RAW
Af hverju að velja sérfræðinga?
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur starfað í faginu síðan 2012. Við höfum bæði tækjabúnað og þekkingu til að klára málin hérlendis.
Sérfræðingar okkar hafa meira en 22 ára starfsreynslu af flóknum gagnabjörgunarverkefnum og hafa hlotið þjálfun og vottanir hjá leiðandi fyrirtækjum í faginu, svo sem ACE lab.
Varastu að fara með USB-lykla í gagnabjörgun á venjulegt tölvuverkstæði þar sem sérþekkinguna vantar. Rangar aðgerðir geta valdið varanlegum skemmdum.

Spurt og svarað
Hvað gerist eftir að ég kem með USB kubb í gagnabjörgun?
Við skoðum kubbinn og gerum bilanagreiningu. Þú færð verðmat og mat á líkum á árangri áður en við byrjum. Ef þú samþykkir tilboðið byrjum við strax á gagnabjörguninni.
Hvað kostar gagnabjörgun af USB kubbum?
Verðið fer eftir tegund bilunar og því hversu flókin hún er. Við gerum alltaf verðmat eftir skoðun og fast tilboð eftir bilanagreiningu, svo þú veist nákvæmlega hvað verkið kostar.
Hvernig fæ ég gögnin mín afhent?
Gögnin eru afhent á nýjum USB-diski eða send rafrænt ef gagnamagnið er lítið. Við sendum þér lista yfir öll gögnin sem tókst að bjarga áður en þú sækir þau.
Hvað tekur gagnabjörgun langan tíma?
Tíminn fer eftir því hversu flókin bilunin er. Einföld verkefni taka oft 1–3 virka daga en flóknari verkefni geta tekið lengri tíma.
Hvað segja viðskiptavinir okkar?
Við erum stolt af þjónustunni og árangrinum
Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.
Helga Lilja Magnúsdóttir
Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Gunnar Árnason, hljóðmaður
Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.
Leifur Reynir Björnsson
Aðrar gagnabjörgunarþjónustur
Við björgum einnig gögnum af öðrum gerðum geymslumiðla

Hvernig á að koma búnaðinum til okkar?
Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefnum okkar
Komdu með USB lykilinn til Pixla
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Móttaka hjá Pixlum
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00–18:00
Laugardaga: 11:00–15:00
Einnig er hægt að senda USB-lykilinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.
Tapaðir þú gögnum af USB lyklinum?
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar, líka þótt þér hafi verið sagt annars staðar að ekkert sé hægt að gera. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og höfum bjargað gögnum af þúsundum USB-lykla.











