Við björgum gögnum af öllum gerðum snjallsíma og spjaldtölva; Apple, Samsung, Huawei, Nokia, Sony, LG, HTC o.fl. Hvort sem þeir virka, eru með brotna skjái, vatnsskemmdir eða aðrar skemmdir.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan 2012.





Allar gerðir af Apple iPhone og iPad, þar á meðal nýjustu gerðir með A-chip og M-chip örgjörvum.
Samsung, Huawei, Sony, LG, OnePlus, Xiaomi, Google Pixel og fleira.
iPad, Samsung Galaxy Tab, Huawei MatePad og aðrar Android spjaldtölvur.

Vatnsskemmdir
Síminn datt í vatn, sundlaug, salernisker eða varð fyrir rigningu. Við getum oft bjargað gögnum þó síminn virki ekki lengur.
Brotinn skjár
Skjárinn er brotinn og síminn bregst ekki við snertingu. Við getum nálgast gögnin með öðrum aðferðum.
Gleymt lykilorð
Man ekki PIN eða lykilorð og komst ekki inn í símann. Við getum í sumum tilvikum hjálpað.
Hugbúnaðarvilla
Síminn frýs, endurstillir sig eða gögn hurfu eftir uppfærslu. Hugbúnaðarvillur eru oft leysanlegar.
Ef síminn þinn hefur orðið fyrir vatnsskemmdum eða öðrum skemmdum er mikilvægt að bregðast rétt við strax. Rangar aðgerðir geta gert illt verra og jafnvel útilokað möguleika á gagnabjörgun.
Við höfum fengið mörg verkefni þar sem rangar aðgerðir hafa valdið frekari skemmdum. Hafðu strax samband við okkur til að fá rétta ráðgjöf.
Gagnabjörgun af snjallsímum er reiknuð eftir tímagjaldi vegna þess hversu mismunandi verkefnin geta verið og hversu mikil vinna fer í hvert verkefni.
Verkefni taka oftast 6-12 klukkustundir auk varahluta ef þörf er á. Við gefum alltaf verðmat áður en vinna hefst.
* Ef okkur tekst ekki að bjarga gögnunum greiðir þú aðeins 50% af vinnukostnaði auk varahluta. Ef tilboð í gagnabjörgun er ekki samþykkt er tímagjald innheimt fyrir vinnu við bilanagreiningu skv. skilmálum.
Tímagjald fyrir gagnabjörgun af snjallsímum er 19.697 kr./klst án VSK. Verkefni taka oftast 6-12 klukkustundir auk varahluta ef þörf er á. Við gefum alltaf verðmat áður en vinna hefst.
Við biðjum viðskiptavini að gera ráð fyrir að minnsta kosti 30 dögum fyrir gagnabjörgun af snjallsímum. Tíminn fer eftir hversu flókin bilunin er og hvort þörf er á varahlutum.
Ef okkur tekst ekki að bjarga gögnunum greiðir þú aðeins 50% af vinnukostnaði auk kostnaðar vegna varahluta sem keyptir voru fyrir verkefnið.
Já, við getum oft bjargað gögnum þó skjárinn sé brotinn. Við notum sérhæfðan búnað til að nálgast gögnin án þess að þurfa að nota skjáinn.
Þá færðu greiðsluseðil fyrir vinnu við bilanagreiningu. Þú velur svo hvort við sendum búnaðinn með Dropp á afhendingarstað að þínu vali á þinn kostnað, hvort þú sækir hann til Pixla á Suðurlandsbraut 54 eða hvort við fargum honum á öruggan hátt. Það kostar ekkert að sækja búnaðinn til Pixla eða láta farga honum.
Við erum stolt af framúrskarandi þjónustu og árangri
Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.
Helga Lilja Magnúsdóttir
Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.
Bjarni Frímann Karlsson
Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Gunnar Árnason, Hljóðmaður
Við bjóðum einnig upp á gagnabjörgun af öðrum tegundum geymslumiðla

Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefsíðunni okkar
Komdu með tækið til Pixlar
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Pixlar – Móttökustaður
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00 – 18:00
Laugardaga: 11:00 – 15:00
Einnig er hægt að senda búnaðinn í pósti. Hafðu samband til að fá leiðbeiningar.
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu búnaðinum til okkar. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun af snjallsímum og spjaldtölvum og höfum bjargað gögnum úr þúsundum tækja.