571-9300 hjalp@datatech.is Suðurlandsbraut 54 10:00-18:00 virka daga og 11:00-15:00 laugardaga

Þrjár varnarlínur fyrir fyrirtæki sem vilja taka sín fyrstu skref í auknu gagna og netöryggi

Hefur þú velt fyrir þér hvað myndi gerast ef tölvukerfið þitt yrði lamað í heilan dag eða marga daga? Eða ef viðkvæm viðskiptagögn myndu leka út? Fyrir mörg fyrirtæki gæti slíkt þýtt milljóna króna tap, skaddað orðspor og glataða viðskiptavini.

Staðreyndin er sú að netárásir eru ekki lengur spurning um „hvort“ heldur „hvenær“. Á meðan stór fyrirtæki fjárfesta miklum fjármunum í netöryggi standa minni fyrirtæki oft varnarlaus þar sem lítið er almennt hugsað út í þessa hluti. En góðu fréttirnar eru þær að þú þarft ekki endilega flókin og dýr kerfi til að byggja upp grunnvarnir fyrir þitt fyrirtæki.

Sértilboð á gagnabjörgun af SSD diskum með firmware eða „translator“ túlkara skemmdir á aðeins 65.900 kr. (tilboð gildir til áramóta)

Sértilboð á gagnabjörgun af sATA SSD diskum með firmware eða „translator“ túlkara skemmdir á aðeins 65.900 kr. (tilboð gildir til áramóta)Liggur hjá þér sATA (2,5″) SSD eða sATA M2.SSD diskur sem hætti að virka upp úr þurru? Við hjá Datatech.is vorum að fá glænýja uppfærslu á gagnabjörgunarbúnað okkar sem gerir okkur mögulegt að lagfæra mjög algengar túlkara „translator“ skemmdir sem eru í flestum tilfellum ástæðan fyrir því að sATA SSD oog Sata…

Hvað er S3 Hlutlæsing? Settu öryggisbelti á gögnin þín og verðu þau fyrir óhöppum eða netárásum.

S3 hlutlæsing er eins og ofuröflugur lás sem þú setur á gögnin þín í skýinu. Þegar þú læsir hlut (sem er bara fínt orð yfir skrá eða gögn), þá er eins og þú sért að setja hann í peningaskáp með tímalási. Enginn getur breytt hlutnum eða eytt honum fyrr en tíminn sem þú ákveður er liðinn. Með Datatech Gagnaafritun getur þú valið hversu lengi gögnin eiga vera óumbreytanleg. Með því…

Tryggðu gögnin þín fyrir gagnagíslatökum og öðrum áföllum með gagnaafritun Datatech. Dulkóðuð og vöktuð afritun inn á grænt ský af öllum þínum gögnum!

Datatech gagnaafritun býður upp á sjálfvirkt öryggisafritunarferli sem tryggir að gögnin þín séu alltaf örugg og tiltæk. Ferlið hefst með því að skilgreina hvaða gögn á að taka afrit af og hversu oft afritun eiga að fara fram. Aðeins er tekið fullt afrit af hverri skrá einu sinni svo breytingar sjálfkrafa í framhaldi af því, við mælum með að stilla kerfið til að taka að minnsta kosti afrit 12 sinnum á sólarhring.

Mýtur um gagnabjörgun

Margar mýtur eru í gangi um hvað sé hægt að gera til að koma biluðum hörðum diskum í gang aftur. Því miður eru flestar þeirra ónothæfar og munu bara gera endurheimt gagnanna mun erfiðari og dýrari eða jafnvel ómögulega! Vítin eru til að varast þau: Datatech.is er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og býr raunverulega yfir sérhæfðum tækjum ásamt mikilli þekkingu og reynslu í faginu. Varist…