Gagnabjörgun af fartölvum
Við björgum gögnum af öllum gerðum fartölva: Mac, Windows og Linux, hvort sem tölvan er með harðan disk, SSD eða NVMe. Við opnum tölvuna, fjarlægjum diskinn ef hægt er eða lesum beint af innbyggðum geymslukubbum og afritum gögnin yfir á öruggan miðil.
Eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun, starfandi síðan apríl 2012.


Af hverju að velja sérfræðinga í gagnabjörgun?
Gagnabjörgun af fartölvum er flóknari en af venjulegum borðtölvum. Nýrri MacBook-tölvur eru með SSD-diska sem eru lóðaðir beint á móðurborðið og bæði Windows-fartölvur og Mac eru oftast með innbyggða dulkóðun (BitLocker, FileVault, T2-öryggiskubb). Til þess þarf sérhæfðan búnað og þekkingu.
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun. Við höfum starfað í faginu síðan í apríl 2012 og höfum bæði tækjabúnað og þekkingu til að klára málin hérlendis.
Sérfræðingar okkar hafa meira en 22 ára starfsreynslu af flóknum gagnabjörgunarverkefnum. Þeir hafa hlotið þjálfun hjá leiðandi fyrirtækjum í faginu, svo sem ACE lab, og eru með gildar vottanir frá þeim.
Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli
Við gagnabjörgun af fartölvum skipta fyrstu aðgerðir öllu máli. Leitaðu því strax til fagaðila frekar en á venjulegt tölvuverkstæði, því tæknimaðurinn þarf að vita nákvæmlega hvað hann er að gera.
Ef fartölvan hefur orðið fyrir áfalli (vökvaskemmd, falli, eldi eða öðru slíku) eða ræsist ekki er öruggast að taka hana úr sambandi við rafmagn. Ekki reyna að kveikja á henni aftur og aftur. Því fyrr sem þú kemur með hana til okkar, því betri eru líkurnar.
- Ekki reyna að kveikja á fartölvunni aftur og aftur ef hún ræsist ekki
- Ekki setja blauta fartölvu í hrísgrjón. Það stöðvar ekki tæringu
- Ekki taka diskinn úr fartölvunni og reyna að lesa hann í annarri tölvu
- Ekki nota ókeypis gagnabjörgunarhugbúnað
- Ekki setja stýrikerfið upp aftur eða núllstilla (reset) fartölvuna
- Ekki fara með fartölvuna á venjulegt tölvuverkstæði
Við björgum gögnum af öllum gerðum fartölva
Við björgum gögnum í þessum tilfellum:
- Fartölvur sem ræsast ekki
- Vatns- og vökvaskemmdar fartölvur
- Fartölvur með dauðu móðurborði
- MacBook með T2/Apple Silicon kubbum
- Dulkóðaðir diskar (BitLocker, FileVault)
- Brotinn skjár eða lyklaborð (diskur óskemmdur)
Algeng einkenni
- Fartölvan ræsist ekki: engin mynd, engin ljós
- Apple-merkið birtist en tölvan ræsir sig ekki
- Bláskjár (BSOD) eða stöðug endurræsing
- Hljóð heyrist í diskinum en stýrikerfið finnur hann ekki
- Skemmdar skrár eftir vökvaskemmd
- Fartölvunni var stolið eða hún týndist og aðeins diskurinn er eftir
MacBook með innlóðuðum SSD eða T2/Apple Silicon kubb
Frá 2016 hafa flestar MacBook-tölvur verið með SSD-geymslu sem er lóðuð beint á móðurborðið. Ekki er hægt að fjarlægja diskinn og lesa hann í öðrum búnaði. Frá 2018 bættist T2-öryggiskubburinn við (og Apple Silicon frá 2020), sem dulkóðar öll gögn í vélbúnaði.
Gagnabjörgun af nýrri MacBook-tölvum krefst því sérhæfðra aðferða: lesa þarf beint af NAND-kubbum á móðurborðinu og endurbyggja gögnin með sérhæfðum hugbúnaði. Við höfum búnað og þekkingu til að klára þessi verkefni hér á Íslandi.
Mikilvægt: Ef MacBook eða önnur fartölva með innlóðuðum SSD hefur orðið fyrir vökvaskemmd eða öðru áfalli skaltu ekki reyna að kveikja á henni aftur og aftur. Það getur aukið tæringu á móðurborðinu og eyðilagt gögnin varanlega. Taktu hana strax úr sambandi við rafmagn og komdu með hana til okkar.

Algengar spurningar um gagnabjörgun af fartölvum
Svör við algengum spurningum um gagnabjörgun af fartölvum og MacBook
Fartölvan mín ræsist ekki. Er hægt að bjarga gögnunum?
Já, í flestum tilvikum. Þó að fartölvan ræsist ekki getur diskurinn sjálfur verið óskemmdur. Orsökin er oft móðurborð, aflgjafi eða skjár. Við opnum fartölvuna, fjarlægjum diskinn og afritum gögnin yfir á öruggan miðil. Í nýrri MacBook-tölvum með innlóðuðum SSD lesum við beint af NAND-kubbum á móðurborðinu.
Er hægt að bjarga gögnum af vökvaskemmdri fartölvu?
Já, en því fyrr því betra. Vökvi veldur tæringu á íhlutum og tæringin eykst með tímanum og í hvert sinn sem reynt er að kveikja á tölvunni. Taktu fartölvuna strax úr sambandi við rafmagn, ekki reyna að kveikja á henni aftur, og komdu með hana til okkar. Við höfum oft bjargað gögnum af fartölvum sem aðrir hafa sagt að ekkert sé hægt að gera við.
Hvað kostar gagnabjörgun af fartölvu?
Verðið fer eftir tegund fartölvu og því hvers konar bilun er um að ræða. Eldri fartölvur með hörðum diski sem hægt er að skrúfa úr eru einfaldari viðfangs en nýjar MacBook-tölvur með innlóðuðum SSD. Eftir bilanagreiningu sendum við fast tilboð í gagnabjörgun í tölvupósti. Ef tilboði er hafnað er innheimt gjald fyrir vinnustundir við bilanagreiningu samkvæmt verðskrá.
Þarf ég lykilorðið mitt að fartölvunni?
Það er æskilegt en ekki alltaf nauðsynlegt. Á dulkóðuðum diskum (BitLocker, FileVault) þarf ýmist lykilorðið, endurheimtarlykilinn eða aðgang að Microsoft-reikningi eða Apple ID til að afkóða gögnin. Ef þú hefur ekki lykilinn getum við oft samt afritað dulkóðuðu gögnin af diskinum, en endanleg endurheimt veltur á því að lykillinn finnist.
Er fartölvan sjálf í lagi eftir gagnabjörgun?
Datatech sérhæfir sig í gagnabjörgun, ekki vélbúnaðarviðgerðum. Við skilum fartölvunni eins og hún var þegar þú komst með hana, ásamt gögnunum á öruggum miðli. Ef þú þarft viðgerð á fartölvunni sjálfri, til dæmis á skjá, lyklaborði eða móðurborði, mælum við með [Computer.is](https://computer.is) fyrir Windows-tölvur og [applevidgerdir.is](https://applevidgerdir.is) fyrir Apple-tækin.
Af hverju getur gagnabjörgun af fartölvum verið kostnaðarsöm?
Gagnabjörgun af fartölvum krefst sérhæfðs vélbúnaðar, sérstaklega fyrir nýrri MacBook-tölvur með T2/Apple Silicon kubbum og innlóðuðum SSD. Hver fartölvugerð hefur sína sérstöku uppsetningu og dulkóðun.
- Sérhæfður búnaður (PC-3000, DeepSpar, NAND-lesari)
- Þekking á T2/Apple Silicon kubbum og innlóðuðum SSD
- Sérhæfður hugbúnaður frá ACE lab o.fl.
- Nálgast þarf hvert verkefni á sinn hátt því fartölvur eru afar ólíkar
- Starfsfólk þarf sérmenntun og sækir árlega námskeið hjá ACE lab og öðrum framleiðendum
- Áskriftir að sérhæfðum hugbúnaði sem endurnýjast árlega

Hvað segja viðskiptavinir okkar?
Við erum stolt af þjónustunni og árangrinum
Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kostnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Gunnar Árnason, hljóðmaður
Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð hjá Datatech var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan 'itty bitty' disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.
Leifur Reynir Björnsson
Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.
Bjarni Frímann Karlsson
Aðrar gagnabjörgunarþjónustur
Við björgum einnig gögnum af öðrum gerðum geymslumiðla

Hvernig á að koma fartölvunni til okkar?
Stofnaðu þjónustubeiðni
Fylltu út eyðublaðið á vefnum okkar
Komdu með fartölvuna til Pixla
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Fáðu bilanagreiningu og verðmat
Þú samþykkir eða hafnar tilboðinu
Móttaka hjá Pixlum
Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík
Virka daga: 10:00–18:00
Laugardaga: 11:00–15:00
Einnig er hægt að senda fartölvuna til okkar frítt með Póstinum. Þú velur það þegar þú stofnar þjónustubeiðni.
Tapaðir þú gögnum af fartölvunni þinni?
Stofnaðu þjónustubeiðni og komdu fartölvunni til okkar, líka þótt þér hafi verið sagt annars staðar að ekkert sé hægt að gera. Við erum sérfræðingar í gagnabjörgun og notum sérhæfðan búnað frá ACE lab, DeepSpar og HddSurgery til að ná sem bestum árangri.











