Hoppa í aðalefni

Skilmálar Skýjadrifs

Þessir skilmálar gilda um Skýjadrif, skýjageymslu Datatech ehf. á afrit.datatech.is. Með því að stofna aðgang eða nota þjónustuna samþykkir þú skilmálana. Lestu þá. Þeir segja meðal annars hvenær gögnum er eytt og hvenær aldrei.

  1. Þjónustan og þjónustuveitandinn. Skýjadrif er skýjageymsla sem Datatech ehf., kt. 420115-0240, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík („Datatech“, „við“), rekur á afrit.datatech.is. Skilmálarnir eru samningur milli þín og Datatech um alla notkun þjónustunnar.
  2. Skilmálar og rétthæð. Þessir skilmálar gilda um Skýjadrif. Um gagnabjörgun og aðra vinnu sem Datatech innir af hendi gilda þjónustuskilmálar gagnabjörgunar á datatech.is. Verðskrá Datatech og persónuverndarstefna fyrirtækisins eru hluti samningsins. Sé misræmi milli skjala ræður sérstakt skriflegt samkomulag við þig fyrst, því næst þessir skilmálar og loks aðrir skilmálar Datatech.
  3. Aðgangur og öryggi. Við stofnun aðgangs þarftu að gefa réttar upplýsingar: nafn, netfang og kennitölu vegna reikningagerðar. Tveggja þátta auðkenning er skylda fyrir alla notendur. Varakóðar eru einnota og á þína ábyrgð að geyma á öruggum stað. Þú berð ábyrgð á allri notkun undir þínum aðgangi; við höfum aldrei aðgang að lykilorðinu þínu og biðjum aldrei um það.
  4. Aðgangur starfsfólks að gögnunum þínum. Við venjulegan rekstur hefur starfsfólk Datatech ekki aðgang að efninu í geymslunni þinni. Aðgangur er opnaður í þremur tilvikum: þegar þú biður um aðstoð og heimilar hann, þegar Datatech afhendir þér gögn sem fyrirtækið endurheimti fyrir þig og þar til þú hefur tekið við þeim, og þegar lög skylda okkur til þess. Hver slík aðgerð er skráð og þú sérð hana sjálf undir Atburðaskrá í stillingum aðgangsins. Við biðjum aldrei um lykilorðið þitt og getum ekki lesið það.
  5. Gögnin þín eru þín. Þú heldur öllum rétti yfir því efni sem þú geymir í Skýjadrifi. Skilmálarnir færa Datatech ekkert eignarhald. Við fáum aðeins þá tæknilegu heimild sem þarf til að reka þjónustuna: að geyma gögnin, gera af þeim öryggiseintök innan þjónustunnar, birta þér þau og vinna úr þeim það sem þjónustan sýnir (til dæmis smámyndir af myndum), og eingöngu í þeim tilgangi.
  6. Hugverkaréttindi. Datatech á hugbúnaðinn, viðmótið og vörumerki sín. Þú færð afnotarétt af þjónustunni á meðan áskrift er í gildi og ekkert umfram það. Óheimilt er að afrita hugbúnaðinn, bakþýða hann eða endurselja aðgang að þjónustunni án skriflegs samþykkis Datatech. Þetta hefur engin áhrif á eignarrétt þinn á efninu sem þú geymir, sbr. 5. gr.
  7. Deiling. Ef þú deilir skrá með hlekk berð þú ábyrgð á því hverjir fá hlekkinn. Deilihlekk má afturkalla í þjónustunni og þá lokast aðgangur um hann.
  8. Heimil notkun. Þjónustuna má aðeins nota fyrir löglegt efni og í lögmætum tilgangi. Óheimilt er meðal annars að geyma eða dreifa efni sem brýtur gegn höfundarétti eða öðrum lögum, spilliforritum eða efni sem er til þess fallið að skaða aðra. Við alvarleg eða ítrekuð brot getum við lokað aðgangi tímabundið eða varanlega og látum vita af því nema lög banni.
  9. Persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga. Um vinnslu persónuupplýsinga fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, reglugerð (ESB) 2016/679 og persónuverndarstefnu Datatech. Geymir þú persónuupplýsingar um aðra í Skýjadrifi ert þú ábyrgðaraðili þeirra og Datatech vinnsluaðili, og gildir þessi grein þá sem vinnslusamningur milli okkar. Datatech vinnur upplýsingarnar eingöngu samkvæmt fyrirmælum þínum og til að veita þjónustuna, tryggir að starfsfólk sé bundið þagnarskyldu, beitir viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum í samræmi við 32. gr. reglugerðarinnar, aðstoðar þig við beiðnir skráðra einstaklinga eftir því sem þjónustan leyfir, og eyðir upplýsingunum eða skilar þeim við lok samnings, sbr. 16. gr. Undirvinnsluaðilar eru taldir upp í persónuverndarstefnunni og þér er tilkynnt áður en þeim er breytt. Gögn eru dulkóðuð í flutningi og í geymslu og hýst í Amsterdam, innan Evrópska efnahagssvæðisins.
  10. Öryggi og öryggisbrestir. Við verjum þjónustuna með dulkóðun, skyldubundinni tveggja þátta auðkenningu, aðgangsstýringu og eftirliti. Engin þjónusta er þó ónæm fyrir netárásum, innbrotum eða öðrum atvikum sem gætu valdið gagnaleka. Verði öryggisbrestur sem varðar gögnin þín tilkynnum við þér hann án ótilhlýðilegrar tafar og eigi síðar en 72 klukkustundum eftir að við verðum hans varir. Í tilkynningunni kemur fram það sem við vitum þá um umfangið og hvað við höfum gert. Sért þú ábyrgðaraðili samkvæmt 9. gr. færðu tilkynninguna svo þú getir sinnt þinni eigin tilkynningarskyldu. Þú berð ábyrgð á öryggi þeirra tækja sem þú tengist þjónustunni með og á varakóðunum þínum. Öryggisstefna Datatech lýsir umgjörðinni um þetta: ábyrgð, áhættumat og árlega endurskoðun. Hún fylgir ÍST ISO/IEC 27001. Lesa öryggisstefnu Datatech
  11. Áskrift og verð. Áskrift er mánaðarleg og fer eftir stærð geymslunnar. Verð eru birt með virðisaukaskatti á datatech.is. Greitt er með kröfu í heimabanka eða greiðslukorti. Verðbreytingar eru tilkynntar með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara og taka gildi á næsta áskriftartímabili.
  12. Greiðsluskilmálar og innheimta. Reikningur er gefinn út mánaðarlega með gjalddaga og eindaga. Athugasemdir við reikning skal gera án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningurinn samþykktur. Sé krafa ógreidd eftir eindaga leggjast á dráttarvextir samkvæmt lögum og innheimtukostnaður. Ef greiðsla er ekki innt af hendi innan eðlilegra tímamarka mun krafan verða áfram send til Inkasso.is í milliinnheimtu. Viðskiptavinur gefur upp netfang og símanúmer (samskiptaupplýsingar) í þágu viðskiptanna og samþykkir að samskiptaupplýsingunum verði miðlað til innheimtuaðila, komi til innheimtuaðgerða. Viðskiptavinur samþykkir auk þess að samskiptaupplýsingarnar verði hagnýttar almennt til samskipta við hann vegna innheimtu, þar á meðal með rafrænum innheimtuferlum.
  13. Prufutímabil. Nýr aðgangur sem stofnaður er á vefnum fær 30 daga fría prufu sem rúmar 10 GB. Afhendi Datatech þér gögn sem fyrirtækið endurheimti fylgir prufutímabil sem ákveðið er þegar aðgangurinn er stofnaður, að lágmarki 30 dagar, og rúmar geymslan þá þau gögn sem afhent voru. Lengd prufunnar kemur fram í póstinum sem þú færð þegar aðgangurinn er opnaður. Að prufu lokinni þarf áskrift til að halda geymslunni. Við sendum áminningar áður en prufu lýkur og nefnum alltaf dagsetningu áður en nokkru er eytt.
  14. Vanskil. Greiðist krafa ekki á eindaga sendum við áminningu. Fari krafa fram yfir lokaeindaga læsist aðgangurinn: hvorki er hægt að hlaða upp né sækja gögn, en þú sérð áfram yfirlit yfir þau. Gögnum er ekki eytt vegna vanskila á meðan áskrift er í gildi, og um leið og krafan greiðist opnast aðgangurinn sjálfkrafa aftur. Um dráttarvexti, innheimtukostnað og milliinnheimtu fer eftir 12. gr.
  15. Vinna utan áskriftar. Áskriftin nær til geymslunnar sjálfrar og venjulegrar notendaaðstoðar. Gagnabjörgun, flutningur gagna í stórum stíl, uppsetning á staðnum og önnur sérstök vinna er ekki innifalin og er unnin samkvæmt tilboði eða tímagjaldi í gildandi verðskrá. Um slíka vinnu gilda þjónustuskilmálar gagnabjörgunar að því leyti sem við á.
  16. Uppsögn. Þú getur sagt áskriftinni upp hvenær sem er og hún gildir þá út greitt tímabil. Eftir lok áskriftar færðu færi á að sækja gögnin þín áður en þeim er eytt. Gögnum er aldrei eytt án fyrirvara og tilkynningar. Skrár sem þú setur sjálf í ruslafötuna eyðast 30 dögum síðar; sé aðgangurinn læstur vegna vanskila stöðvast sú talning þar til hann opnast aftur.
  17. Riftun og lok þjónustunnar. Hvor aðili má rifta samningnum með skriflegri tilkynningu brjóti hinn hann verulega og bæti ekki úr innan 30 daga frá því að honum var bent á brotið. Datatech má þó loka aðgangi án fyrirvara sé notkunin ólögleg, ógni hún öryggi þjónustunnar eða valdi öðrum notendum tjóni, sbr. 8. gr. Við riftun færðu færi á að sækja gögnin þín nema lög banni. Datatech má einnig hætta að bjóða Skýjadrif, í heild eða að hluta, og þarf ekki ástæðu til. Þá tilkynnum við það í tölvupósti með að minnsta kosti 90 daga fyrirvara og þú hefur allan þann frest til að sækja gögnin þín. Fyrirframgreidd áskrift sem nær fram yfir lokadaginn er endurgreidd hlutfallslega, og engu er eytt fyrr en fresturinn er liðinn.
  18. Ábyrgð. Við rekum þjónustuna af fagmennsku en hún er veitt „eins og hún er“ og við ábyrgjumst ekki að hún sé án truflana. Að því marki sem lög heimila takmarkast heildarábyrgð Datatech vegna þjónustunnar við fjárhæð sem svarar til áskriftargjalda síðustu tólf mánaða, og við berum ekki ábyrgð á óbeinu eða afleiddu tjóni. Ófrávíkjanleg réttindi neytenda halda alltaf gildi sínu. Við mælum með því að mikilvæg frumgögn séu einnig til á öðrum stað, eins og góð venja er um öll afrit.
  19. Óviðráðanleg atvik. Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum sem rekja má til atvika utan hans stjórnar, svo sem náttúruhamfara, styrjaldar, verkfalla, rafmagnsleysis, bilana í fjarskiptum eða rofs á þjónustu undirverktaka. Vari slíkt ástand lengur en 30 daga má hvor aðili segja samningnum upp án bóta.
  20. Framsal. Þú mátt ekki framselja réttindi þín samkvæmt þessum skilmálum án skriflegs samþykkis Datatech. Datatech má framselja samninginn í heild við samruna, skiptingu eða sölu á rekstrinum og tilkynnir þér það fyrirfram.
  21. Breytingar. Við þróum þjónustuna áfram og getum breytt henni og skilmálunum. Efnislegar breytingar á skilmálum eru tilkynntar í tölvupósti með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara. Áframhaldandi notkun eftir gildistöku jafngildir samþykki; sértu ósammála geturðu sagt upp áður en breytingin tekur gildi.
  22. Lög og lögsaga. Um skilmálana gilda íslensk lög og mál vegna þeirra skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Séu þýðingar skilmálanna ósamhljóða íslensku útgáfunni ræður sú íslenska.
  23. Samband. Spurningar um skilmálana eða þjónustuna: hjalp@datatech.is eða 571 9300. Datatech ehf., Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík.

Skilmálarnir gilda frá 30. ágúst 2026.

Skilmálar Skýjadrifs