
Stafrænar Rannsóknir
Við hjá Datatech getum tekið að okkur stafrænar rannsóknir á tölvubúnaði að því gefnu að viðskiptavinur sé ekki til rannsóknar hjá Lögreglunni.
Við notum samskonar aðferðir og notaðar eru við gagnabjörgun við að afrita búnað í gegnum svokallaða skrifvara (e.write blocker) til þess að eiga ekkert við frumgögnin. Að því loknu notum við ýmsan hugbúnað til að greina gögnin og leita eftir þeim svörum sem óskað er eftir.
Við ritum ýtarlega skýrslu og skilgreinum í henni nákvæmlega hvaða aðferðum var beitt við rannsóknina.
Stafrænar rannsóknir geta verið mjög tímafrekar en við gerum rannsóknaráætlun sem áætlar hversu mikill tími fer í málið áður en vinnan hefst.
Fyrsta skrefið að fylla út formið hér fyrir neðan og við höfum svo samband við þig varðandi næstu skref.
Umsagnir Viðskiptavina
Ég fékk mjög góða þjónustu. Mótaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.
Þorgeir Arnórsson
Stutt og laggott..
Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð frá Datatech þá var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan "itty bitty" disk frá þeim.
Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur.
Hjálp, ég er fiskur var sett í gang og allir sáttir.
Hér er svo sjötta stjarnan.. *
Leifur Reynir Björnsson
Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.
Bjarni Frímann Karlsson
Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.
Helga Lilja Magnúsdóttir
Ég hef 2svar áður tapað gögnum og það gekk ekki að bjarga þeim. Annar diskurinn fór til Bretlands og hinn fór til viðgerðar hjá einstaklingi hér á íslandi. Ég var ekki bjartsýnn þegar móðurborð fór í fartölvunni minni og á móðurborðinu var SSD diskur. Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Ég fékk strax upplýsingar um hvað þetta myndi kosta. Eitt grunn verð sem varð að greiða fyrirfram og svo viðbótarkosnaður ef gagnabjörgun mundi takast. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kosnaðaráætlunina.
Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli.
Takk fyrir mig
Gunnar Árnason
Hljóðmaður
Gunnar Árnason
Hljóðmaður