571-9300 hjalp@datatech.is Suðurlandsbraut 54 10:00-18:00 virka daga og 11:00-15:00 laugardaga
Aflæsing á snjallsímum Datatech - Smartphone unlock

Afslæsingar á Android snjallsímum

Við getum aðstoðað við að opna Android snjallsíma ef PIN hefur gleymst. Þetta fer þó eftir tegund síma og útgáfu stýrikerfis á þeim. Við getum ekki aflæst iPhone símum eins og er en það verður mögulega hægt í nákominni framtíð.

Því fleiri stafir sem eru notaðir í Pin því flóknara verður að aflæsa tækinu. Ef einnig bætast við bókstafir og tákn verður þetta mjög flókið ef ekki ómögulegt.

Þú verður að sanna með kaupnótu sem passar við serial númer tækisins að þú sért réttmætur eigandi tækisins til þess að nýta þér þessa þjónustu.

Spurt og svarað

Við keyrum bruteforce á símann með sérstökum hugbúnaði.

Það fer eftir tegund síma og útgáfu stýrikerfis á símanum, geta verið nokkrir dagar á sumum gerðum eða nokkrir mánuðir í versta falli.

Kostnaður fer eftir hvað er að tegund síma og útgáfu stýrikerfis. Þetta getur verið mjög kostnaðarsamt í sumum tilfellum.

Ef þú hefur tapað dýrmætum gögnum er fyrsta skrefið að senda okkur þjónustubeiðni og velja svo með hvaða hætti þú vilt koma búnaðinum til okkar

 

Við bilanagreinum búnaðinn og sendum þér svo nákvæma skýrslu sem greinir frá áætluðum líkum á endurheimt gagna og tilboð í gagnabjörgun. Við notum gagnabjörgunarbúnað frá Acelab og Deepspar sem eru frumkvöðlar í gagnabjörgun í heiminum og leiðandi í þessum bransa.

Gagnaafritun, hvað er nú það?? Kynntu þér málið og komdu í vegfyrir gagnatap

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!

Ef þú hefur lent í því óhappi að ná ekki sambandi við diskastæðuna þína er mikilvægt að slökkva strax á henni og taka hana úr sambandi, ekki taka diskana úr eða reyna neitt án þess að vita nákævmlega hvað þú ert að gera!

Ekki reyna að laga stæðuna eftir ráðleggingum frá You Tube eða reyna aðrar mýtur um gagnabjörgun. Ekki reyna ókeypis gagnabjörgunar hugbúnað sem þú finnur á internetinu. Varist að fara með diskastæður í gagnabjörgun á venjuleg tölvuverkstæði, þar er engin sérþekking í gagnabjörgun.  Ef þú vilt hámarka líkurnar á árangursríkri og öruggri gagnabjörgun, komdu þá strax með diskastæðuna þína í heilu lagi til okkar þar sem fagmenn okkar hafa áratuga reynslu og þekkja alla mögulegar bilanir á hörðum diskum og RAID stæðum og vita  nákvæmlega hvernig er best að endurheimta gögnin á sem öruggastan hátt og lágmarka tjón þitt.

Umsagnir viðskiptavina

Ég fékk mjög góða þjónustu. Mótaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð frá Datatech þá var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan "itty bitty" disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur. Hjálp, ég er fiskur var sett í gang og allir sáttir. Hér er svo sjötta stjarnan.. *

Leifur Reynir Björnsson

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Ég hef 2svar áður tapað gögnum og það gekk ekki að bjarga þeim. Annar diskurinn fór til Bretlands og hinn fór til viðgerðar hjá einstaklingi hér á íslandi. Ég var ekki bjartsýnn þegar móðurborð fór í fartölvunni minni og á móðurborðinu var SSD diskur. Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Ég fékk strax upplýsingar um hvað þetta myndi kosta. Eitt grunn verð sem varð að greiða fyrirfram og svo viðbótarkosnaður ef gagnabjörgun mundi takast. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kosnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli. Takk fyrir mig Gunnar Árnason Hljóðmaður

Gunnar Árnason

Hljóðmaður

Starfsmenn

Sérfræðingar reiðubúnir til aðstoðar