Gagnabjörgun af SSD diskum
Við björgum gögnum af SSD (Solid State Drive) diskum. SATA SSD, NVMe SSD diskum, M.2 SSD diskum og PCIe SSD diskum. Við búum yfir sérhæfðum búnaði til þess að afrita gögn beint af Nand/Flash kubbunum sem liggja á PCB plötum SSD diska. SSD gagnabjörgun er mjög flókin og í raun mun erfiðara að eiga við SSD diska heldur en hefðbunda harða diska. Sumir SSD diskar eru með dulkóðun (e. onboard encryption) sem gerir gagnabjörgnu erfiðari. Ef ekki tekst að ná dulkóðunarlykli af cpu disksins þá er ekki hægt að bjarga gögnunum.
Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu í yfir 12 ár og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin hérlendis.
Sérfræðingar okkar hafa yfir 20 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna. Veldu trausta aðila með þekkingu og raunverulega reynslu í faginu til þess að endurheimta gögnin þin. Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!
Spurt og svarað
SSD diskar geyma gögn á allt annan hátt heldur en harðir diskar. Þeir nota flash minni og það eru engir segulplattar, leshausar eða aðrir hreyfanlegir partar inn í þeim. Þeir þola því betur t.d. að hristing og óhöpp. Flest allir SSD diskar eru með innbyggða dulkóðun sem gerir gagnabjörgun flókna. SSD diskar eru um 100x hraðvirkari en harðir diskar.
Það er mjög sjaldgjæft að hægt sé að bjarga gögnum eftir að SSD diskur hefur verið forsniðinn þar sem hann virkar allt öðru vísi en harður diskur. SSD diskar eru flest allir í dag með svokallaða TRIM virkni eða „garbage“ collection sem varanlega eyðir blokkum sem hafa geymt gögn eftir að stýrikerfið segir diskum að eyða gögnum. Ólíkt virkni harðra diska þar sem þeir bara „fela“ gögnin fyrir stýrikerfinu en eyða þeim ekki varanlega.
Kostnaður fer eftir því hvað er að disknum og þar sem það eru til endalausar tegundir af SSD diskum þurfum við að bilanagreina hvern og einn disk og gefum svo fast tilboð í gagnabjörgun eftir bilanagreiningu.
Ef þú hefur tapað dýrmætum gögnum er fyrsta skrefið að senda okkur þjónustubeiðni og velja svo með hvaða hætti þú vilt koma búnaðinum til okkar
Við bilanagreinum diskinn og sendum þér svo nákvæma skýrslu sem greinir frá áætluðum líkum á endurheimt gagna og tilboð í gagnabjörgun. Við notum gagnabjörgunarbúnað frá Acelab og Deepspar sem eru frumkvöðlar í gagnabjörgun í heiminum og leiðandi í þessum bransa.
Fyrst þú ert hér… Þá er líklegt að þú þurfir að kynna þér Gagnaafritun
Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!
Ef þú hefur lent í því óhappi að tölvan þín les ekki SSD diskinn þinn er mikilvægt að slökkva strax á tölvunni eða á disknum sjálfum sé þetta utanáliggjandi diskur og taka hann úr sambandi
Ekki reyna að laga diskinn eftir ráðleggingum frá You Tube, ekki setja diskinn í frysti, eða reyna aðrar mýtur um gagnabjörgun. Ekki reyna ókeypis gagnabjörgunar hugbúnað sem þú finnur á internetinu. Varist að fara með harða diska í gagnabjörgun á venjuleg tölvuverkstæði, þar er engin sérþekking í gagnabjörgun. Ef þú vilt hámarka líkurnar á árangursríkri og öruggri gagnabjörgun, komdu þá strax með harða diskinn eða tölvuna þína í heilu lagi til okkar þar sem fagmenn okkar hafa áratuga reynslu og þekkja alla mögulegar bilanir í SSD diskum og vita hvernig er best að endurheimta gögnin á sem öruggastan hátt og lágmarka tjón þitt.
Umsagnir viðskiptavina
Þorgeir Arnórsson
Leifur Reynir Björnsson
Bjarni Frímann Karlsson
Helga Lilja Magnúsdóttir
Gunnar Árnason
Starfsmenn