571-9300 hjalp@datatech.is Suðurlandsbraut 54 10:00-18:00 virka daga og 11:00-15:00 laugardaga
Gagnabjörgun Datatech - Gagnabjörgun af Snjallsímum - Smartphone datarecovery

Spurt og svarað

Þegar við fáum síma sem hefur lent í rakaskemmdum er alltaf byrjað á því að taka hann í sundur og hreinsa alla íhluti. Að því loknu er móðurborðið sett í bað af leysiefni (Dichloromethane) til að leysa upp þunna einangrunarfilmu (e. conformal coating). Að því loknu fer hann á hitaplötu á lágum hita til að þurrka allan mögulegan raka vandlega í 2-3 daga. Að því loknu þarf að fara í gegnum alla parta á móðurborðinu og finna nákvæmlega hvað er skemmt. Þetta er einstaklega tímafrek vinna sem gerð er í gegnum smásjá að mestu leiti.

Að því loknu þurfum við nákvæmlega eins síma í varahluti og notum hann til að endurbyggja þann skemmda að því marki að hægt sé að ræsa hann upp og afrita gögnin af honum með sérstökum gagnabjörgunarhugbúnaði. Markmiðið er aldrei að gera símann nothæfan aftur, heldur aðeins að ná gögnunum, ef við ættum að gera símann nothæfan þá myndi það vera margfalt meiri vinna og myndi aldrei borga sig.

Við rukkum 23.312 kr á klukkustund og reikna má með 6-12 klst í svona verkefni ásamt varahlutakostnaði sem er breytilegur eftir gerð síma. Við þurfum alltaf nákvæmlega eins síma sem er í fullkomnu lagi.

Þegar svo óheppilega fer að gagnabjörgun reynist ómöguleg þá rukkum við sem samsvarar 50% af vinnukostnaði og varahlutakostnað. Þó svo að þegar við komumst að þeirri niðurstöðu að málið gangi ekki upp og oftast búið að eyða mun meiri tíma í verkefnið.

Þetta er gríðarlega tímafrekt ferli og við gefum okkur að lágmarki 30 daga en það er bara áætlun og getur tekið lengri eða stundum styttri tíma.

Þegar þú reynir að kveikja á tæki sem hefur lent í raka- eða vökvaskemmdum þá ertu að senda rafstraum á tækið og það leiðir allt saman og getur skemmt meira.

Gagnabjörgun af snjallsímum og spjaldtölvum

Við getum bjargað gögnum af öllum gerðum af snjallsíma og spjaldtölva;
Apple, Samsung, Huawei, Nokia, Sony, LG, HTC o.fl.

  1. Við getum stundum bjargað eyddum gögnum af snjallsímum og spjaldtölvum
  2. Við getum oftast bjargað gögnum af snjallsímum og spjaldtölvum sem hafa lent í vatnstjóni
  3. Við getum oftast bjargað gögnum af brotnum og dauðum símum

Að bjarga gögnum af snjallsímum er í raun ein flóknasta tegund gagnabjörgunarverkefna sem við hjá Datatech fáum á borðið til okkar.  Til dæmis ef síminn hefur lent í vatni eða slysi og er algjörlega óvirkur þá þarf að fara yfir hvern einasta hlut á móðurborðinu og finna nákvæmlega hvað er bilað og laga símann að því marki að við getum ræst hann og lesið gögnin ef honum. Oftast dugar ekki að fjarlæga aðeins flash minnið og lesa af því þar sem flestir nýir snjallsímar dulkóða gögnin með file-encryption. Þá verður að lesa gögnin í gegnum símann sjálfan og þar sem file encryption lykill er geymdur í dulkóðunarvél símans.

Snjallsímar eru í raun mjög fullkomnar örsmáar tölvur með löngum lista af ýmiskonar pörtum sem þurfa allir að virka saman. Eins og t.d. CPU, RAM, NAND storage memory, Radio transmitter, Encryption engine, Graphic driver, lcd controller, touch controller, usb interface, Bluetooth radio, camera system ofl. Til samanburðar eru t.d. SSD diskar bara CPU og flash minniskubbar.

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem sérhæfir sig í gagnabjörgun og hefur verið starfandi í faginu í yfir 12 ár og býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára málin á Íslandi.Sérfræðingar okkar hafa yfir 20 ára starfsreynslu í úrlausn flókinna gagnabjörgunarverkefna. Veldu trausta aðila með þekkingu og raunverulega reynslu í faginu til þess að endurheimta gögnin þin.

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!

Ef þú hefur tapað dýrmætum gögnum er fyrsta skrefið að senda okkur þjónustubeiðni og velja svo með hvaða hætti þú vilt koma búnaðinum til okkar

 

Við bilanagreinum símann og sendum þér svo nákvæma skýrslu sem greinir frá áætluðum líkum á endurheimt gagna og tilboð í gagnabjörgun. Við notum gagnabjörgunarbúnað frá Acelab og Deepspar sem eru frumkvöðlar í gagnabjörgun í heiminum og leiðandi í þessum bransa.

Fyrst þú ert hér… Þá er líklegt að þú þurfir að kynna þér Gagnaafritun

Fyrstu aðgerðir skipta öllu máli!

Ef þú hefur lent í því óhappi að missa símann þinn í vökva eða öðru tjóni er mikilvægt að reyna ekki að kveikja á honum.

Ekki reyna aðferðir eins og að setja símann í hrísgrjón, það hjálpar ekki neitt, eða aðrar ráðleggingar frá You Tubeeða reyna aðrar mýtur um gagnabjörgun. Ekki reyna ókeypis gagnabjörgunar hugbúnað sem þú finnur á internetinu. Varist að fara með snjallsíma í gagnabjörgun á venjuleg tölvuverkstæði eða fyrirtæki sem bara skipta um skjái á símum,  þar er engin sérþekking í gagnabjörgun.  Ef þú vilt hámarka líkurnar á árangursríkri og öruggri gagnabjörgun, komdu þá strax með símann í heilu lagi til okkar þar sem fagmenn okkar hafa áratuga reynslu og þekkja alla mögulegar bilanir á snjallsímum og vita hvernig er best að endurheimta gögnin á sem öruggastan hátt og lágmarka tjón þitt.

Umsagnir viðskiptavina

Ég fékk mjög góða þjónustu. Mótaka verkefna er einföld og góð. Þjónustan er unnin hratt og örugglega. Í mínu tilfelli var um að ræða erfitt verkefni en ég fékk öll gögnin mín til baka.

Þorgeir Arnórsson

Stutt og laggott.. Kom með ónýtan disk en eftir mikið puð frá Datatech þá var hægt að bjarga öllu úr disknum og setja yfir í þennan "itty bitty" disk frá þeim. Draumur og allir ánægðir að geta loks séð allt aftur. Hjálp, ég er fiskur var sett í gang og allir sáttir. Hér er svo sjötta stjarnan.. *

Leifur Reynir Björnsson

Ég fékk fyrirmyndarþjónustu. Persónuleg tölvugögn mín voru illu heilli að mestu leyti vistuð á einum diski, sem varð allt í einu ólesanlegur. Eftir bilanagreiningu var mér bent á Datatech. Þar var gögnunum bjargað 100%. Öll samskipti voru eins og best verður á kosið.

Bjarni Frímann Karlsson

Virkilega hröð og professional þjónusta. Bjargaði gögnunum mínum 100% og var alltaf til staðar að svara hvaða spurningum sem er. Mæli með.

Helga Lilja Magnúsdóttir

Ég hef 2svar áður tapað gögnum og það gekk ekki að bjarga þeim. Annar diskurinn fór til Bretlands og hinn fór til viðgerðar hjá einstaklingi hér á íslandi. Ég var ekki bjartsýnn þegar móðurborð fór í fartölvunni minni og á móðurborðinu var SSD diskur. Apple verkstæði gat ekkert gert fyrir mig og bentu mér á Datatech en lofuðu ekki árangri. Ég var ekki bjartsýnn en ákvað að prófa. Ég fékk strax upplýsingar um hvað þetta myndi kosta. Eitt grunn verð sem varð að greiða fyrirfram og svo viðbótarkosnaður ef gagnabjörgun mundi takast. Þetta tók tíma en tókst og það var staðið við kosnaðaráætlunina. Ég get þeim bestu mögulegu meðmæli. Takk fyrir mig Gunnar Árnason Hljóðmaður

Gunnar Árnason

Hljóðmaður

Starfsmenn

Sérfræðingar reiðubúnir til aðstoðar