571-9300 hjalp@datatech.is Suðurlandsbraut 54 10:00-18:00 virka daga og 11:00-15:00 laugardaga

Öruggari tölvukerfi

með öryggislausnum okkar

VÖKTUÐ GAGNAAFRITUN

Tryggðu öryggi gagna fyrirtækisins með gagnaafritun af vinnustöðvum, netþjónum og skýjaþjónustum.

Vöktuð, sjálfvirk og dulkóðuð gagnaafritun með S3 hlutlæsingu.

Afritum gögn af vinnustöðvum, netþjónum og skýjalausnum og vistum á öðrum stað svo hægt sé að endurheimta ef upprunalegu gögnin tapast, skemmast eða verða fyrir gagnagíslatöku þriðja aðila, til að tryggja samfellu í viðskiptum og lágmarka fjárhagslegan skaða.

Datatech gagnaafritun styður Object Lock á AWS S3 geymslusniðmátum sem tryggja óumbreytileika gagna. Þessir eiginleikar bjóða upp á hámarksvernd gegn gagnatapi, óviðkomandi aðgangi og gagnagíslatöku.

SÉRHÆFÐ GAGNABJÖRGUN

Endurheimtu glötuð, skemmd eða óaðgengileg gögn af tölvum, hörðum diskum, minniskubbum eða snjallsímum.

Leiðtogar í gagnabjörgun á Íslandi síðan árið 2012.

Endurheimtum gögn af hörðum diskum, SSD diskum, diskastæðum, minniskortum, USB kubbum og snjallsímum ef gögn glatast, eyðast, skemmast eða verða óaðgengileg af öðrum orsökum. Höfum bjargað gögnum yfir 4.500 einstaklinga og fyrirtækja síðan árið 2012.

Datatech er eina fyrirtækið á Íslandi sem býr yfir sérhæfðum tæknibúnaði og þekkingu til að klára gagnabjörgun hérlendis. Tölvur og símar eru viðkvæm tæki, sérstaklega eftir að hafa bilað, og því mikilvægt að forðast hnjask og áhættu við póstsendingar.

SÉRSNIÐNAR SKÝJALAUSNIR

Hafðu öll gögn fyrirtækisins aðgengileg í skýinu á hagkvæman og auðveldan hátt hvaðan og hvenær sem er.

Sérhæfum okkur í skýjalausnum Microsoft 365.

Með skýjalausnum öðlast fyrirtæki aðgang að tölvuhugbúnaði og gagnageymslu yfir netið, hvar sem er og hvenær sem er. Datatech er viðurkenndur samstarfsaðili Microsoft eða svokallaður Microsoft Cloud Solution Partner og sérhæfir sig í skýjalausnum Microsoft 365.

Datatech er samstarfsaðili Microsoft, svokallaður Microsoft Cloud Solution Partner, og veitir Microsoft 365 leyfi í áskrift á bestu mögulegum kjörum, með vaktaða vírus- og netöryggisvörn og örugga gagnaafritun af öllum skýjagögnum.

Okkar helstu lykiltölur

91

endurheimt gagnabjörgunar

4529

ánægðir viðskiptavinir

20

ára reynsla sérfræðinga

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?

Greinar og fréttir af okkur

Skýjalausnir Fáðu tilboð í heildarlausn fyrir þitt fyrirtæki